fbpx
Miðvikudagur 18.mars 2026
433Sport

Arnar segir frá því hvernig Gylfi hefur heillað hann – „Hann var spenntur eins og krakki í leikfangabúð“

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 18. mars 2026 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arnar Gunnlaugsson hefur opinberað hóp sinn fyrir komandi verkefni en íslenska liðið leikur gegn Kanada og Haítí í mars og fara báðir leikir fram í Kanada. Um er að ræða æfingaleiki.

Þetta eru fyrstu alvöru landsleiki ársins en liðið lék æfingaleik í febrúar gegn Mexíkó þar sem ekki var hægt að velja sterkasta hópinn.

Gylfi Þór Sigurðsson lék þar sinn fyrsta landsleik eftir að Arnar tók við og hann er aftur í hópnum „Hann heillaði mig frá fyrsta símtali sem ég tók við hann, hann var spenntur eins og krakki í leikfangabúð,“ segir Arnar um samskipti sín við Gylfa.

Hann segir að Gylfi hafi í Mexíkó sýnt hvað hann er til í að leggja á sig fyrir landsliðið. „Hann var svo on it og tilbúinn, svo kemur hann til Mexíkó og var frábær innan sem utan vallar.“

Hann vonar að Gylfi ásamt Aroni Einari Gunnarssyni og Jóhanni Berg Guðmundssyni verði klárir í slaginn í Þjóðadeildinni í haust.

„Mér fannst hann eiga skilið að vera í þessum hóp, vonandi með Aron, Jóa og Gylfa. Þeir geta hjálpað okkur í haust ef þeir eru í góðu standi, ég er sannfærður um það,“ sagði Arnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Segir fjölmiðla flytja tóma steypu – „Mjög alvarlegt“

Segir fjölmiðla flytja tóma steypu – „Mjög alvarlegt“
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Strákarnir okkar mæta Japan – Unnið að því að skipuleggja annan leik

Strákarnir okkar mæta Japan – Unnið að því að skipuleggja annan leik
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Eru klár í slaginn við Arsenal

Eru klár í slaginn við Arsenal
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

KSÍ tilkynnir leiktímann

KSÍ tilkynnir leiktímann
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Biðst afsökunar eftir að hafa reitt pabba ungstirnisins til reiði

Biðst afsökunar eftir að hafa reitt pabba ungstirnisins til reiði
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

FIFA hafnar beiðni Íran

FIFA hafnar beiðni Íran
433Sport
Í gær

Cole Palmer sagður mjög spenntur fyrir því að fara til United

Cole Palmer sagður mjög spenntur fyrir því að fara til United
433Sport
Í gær

Neymar í sárum en vonar að draumurinn rætist

Neymar í sárum en vonar að draumurinn rætist