fbpx
Miðvikudagur 18.mars 2026
433Sport

Arnar opinberar hóp sinn fyrir ferðina til Kanada: Gylfi Þór og Aron Einar valdir – Orri Steinn snýr aftur

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 18. mars 2026 13:01

Gylfi Þór Sigurðsson, Mynd: DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arnar Gunnlaugsson hefur opinberað hóp sinn fyrir komandi verkefni en íslenska liðið leikur gegn Kanada og Haítí í mars og fara báðir leikir fram í Kanada. Um er að ræða æfingaleiki.

Þetta eru fyrstu alvöru landsleiki ársins en liðið lék æfingaleik í febrúar gegn Mexíkó þar sem ekki var hægt að velja sterkasta hópinn.

Gylfi Þór Sigurðsson lék þar sinn fyrsta landsleik eftir að Arnar tók við og hann er aftur í hópnum. Aron Einar Gunnarsson er á sínum stað.

Albert Guðmundsson er frá, hann fær tækifæri til að jafna sig af meiðslum sem hafa hrjáð hann í vetur.

Jóhann Berg Guðmundsson er án félags og er sökum þess ekki með. Kristall Máni Ingason kemur inn í hópinn og Dagur Dan Þórhallsson fær einnig kallið.

Arnór Sigurðsson hefur lengi verið utan hóps en mætir til leiks núna.

Þá er Orri Steinn Óskarsson fyrirliði liðsins mættur aftur en hann hefur ekki verið í hópnum í eitt ár vegna meiðsla.

Hópurinn:

Elías Rafn Ólafsson – FC Midtjylldand – 13 leikir
Hákon Rafn Valdimarsson – Brentford F.C. – 20 leikir
Anton Ari Einarsson – Breiðablik – 3 leikir

Mikael Egill Ellertsson – Genoa CFC – 27 leikir, 2 mörk
Logi Tómasson – Samsunspor – 13 leikir, 1 mark
Daníel Leó Grétarsson – Slask Wroclaw – 29 leikir
Hörður Björgvin Magnússon – Levadiakos – 51 leikur, 2 mörk
Sverrir Ingi Ingason – Panathinaikos F.C. – 65 leikir, 4 mörk
Aron Einar Gunnarsson – Al Gharafa-SC – 107 leikir, 5 mörk
Dagur Dan Þórhallsson – CF Montréal – 7 leikir
Guðlaugur Victor Pálsson – AC Horsens – 56 leikir, 5 mörk

Ísak Bergmann Jóhannesson – 1. FC Köln – 41 leikur, 6 mörk
Gylfi Þór Sigurðursson – Víkingur R. – 84 leikir, 27 mörk
Stefán Teitur Þórðarson – Hannover 96 – 34 leikir, 1 mark
Andri Fannar Baldursson – Kasimpasa S.K. – 10 leikir
Kristall Máni Ingason – SK Brann – 6 leikir

Jón Dagur Þorsteinsson – SK Brann – 52 leikir, 6 mörk
Mikael Neville Anderson – Djurgardens IF – 37 leikir, 2 mörk
Arnór Sigurðsson – Malmö FF – 34 leikir, 2 mörk
Brynjólfur Andersen Willumsson – FC Groningen – 7 leikir, 1 mark
Orri Steinn Óskarsson – Real Sociedad – 16 leikir, 7 mörk
Hákon Arnar Haraldsson – LOSC Lille – 28 leikir, 3 mörk
Kristian Nökkvi Hlynsson – FC Twente – 9 leikir, 2 mörk

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Strákarnir okkar mæta Japan – Unnið að því að skipuleggja annan leik

Strákarnir okkar mæta Japan – Unnið að því að skipuleggja annan leik
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Leikmenn Senegal bregðast við niðurstöðunni – „Ég held að við séum á geðveikrahæli“

Leikmenn Senegal bregðast við niðurstöðunni – „Ég held að við séum á geðveikrahæli“
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Love Island-stjarna fullyrðir að erfitt sé að fá starf eftir þátttöku í þáttunum – Segir að þetta sé ástæðan

Love Island-stjarna fullyrðir að erfitt sé að fá starf eftir þátttöku í þáttunum – Segir að þetta sé ástæðan
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

FIFA hafnar beiðni Íran

FIFA hafnar beiðni Íran
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Fannst látinn nálægt vinsælum áfangastað ferðamanna – Með skotsár á höfði

Fannst látinn nálægt vinsælum áfangastað ferðamanna – Með skotsár á höfði