fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
433Sport

City horfir til Tottenham – Búast við afslætti ef Spurs fellur

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 17. mars 2026 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester City gæti átt möguleika á að fá spænska bakvörðinn Pedro Porro frá Tottenham fyrir lægra verð en áður hefur verið talið.

Porro, sem er 26 ára gamall og landsliðsmaður Spánar, hefur verið metinn á um 80 milljónir punda. Samkvæmt fréttum gæti það verð þó lækkað verulega ef Tottenham lendir í fjárhagslegum erfiðleikum vegna mögulegs falls úr ensku úrvalsdeildinni.

Ef slíkt gerist gætu Spurs neyðst til að selja lykilleikmenn til að bæta stöðu sína fjárhagslega. Manchester City er sagt fylgjast grannt með stöðu mála og gæti reynt að nýta sér aðstæður til að fá Porro til félagsins á hagstæðara verði.

Porro hefur verið einn af áberandi leikmönnum Tottenham undanfarin tímabil og er þekktur fyrir sóknarhæfileika sína sem hægri bakvörður.

Hann þekkir einnig vel til hjá Manchester City þar sem hann var áður á mála hjá félaginu, þó hann hafi ekki náð að spila með aðalliðinu áður en hann fór til Sporting Lissabon.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Sauð gjörsamlega upp úr í beinni útsendingu þegar Rikki G stýrði umræðum – „Þetta eru bara staðreyndir vitleysingurinn þinn“

Sauð gjörsamlega upp úr í beinni útsendingu þegar Rikki G stýrði umræðum – „Þetta eru bara staðreyndir vitleysingurinn þinn“
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

United talið ætla að kaupa fjóra leikmenn í sumar – Þetta eru stöðurnar sem horft er í

United talið ætla að kaupa fjóra leikmenn í sumar – Þetta eru stöðurnar sem horft er í
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

U-beygja ekki í kortunum

U-beygja ekki í kortunum
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Stuðningsmenn Real Madrid fá frábærar fréttir fyrir leikinn í Manchester

Stuðningsmenn Real Madrid fá frábærar fréttir fyrir leikinn í Manchester
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Chelsea fær sekt og félagaskiptabann

Chelsea fær sekt og félagaskiptabann
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Myndband: Uppákoma á BBC vekur athygli – Virtist óvart strá salti í sár Rooney

Myndband: Uppákoma á BBC vekur athygli – Virtist óvart strá salti í sár Rooney