fbpx
Sunnudagur 22.mars 2026
Pressan

Bjóða ökumönnum 25.000 evrur fyrir að leggja ökuskírteini sitt inn í 5 ár

Pressan
Sunnudaginn 22. mars 2026 09:00

Valetta á Möltu. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maltnesk yfirvöld eru nú að undirbúa óvenjulega aðgerð til að takast á við mikinn umferðarþunga á eyjunni.

Times of Malta segir að nú sé til skoðunar að bjóða ökumönnum allt að 25.000 evrur fyrir að leggja ökuskírteini sitt inn í fimm ár og sleppa því að keyra í þennan tíma.

Þessi tillaga er hluti af stærri pakka sem reiknað er með að verði kynntur á næstunni. Markmiðið er að takmarka bílafjölda á vegum landsins en umferðarþunginn er orðinn ansi mikill vegna þess hversu almenn bílaeign er orðin.

Samkvæmt áætluninni verður ökumönnum boðin árlega greiðsla upp á 5.000 evrur fyrir að leggja ökuskírteini sitt inn og sleppa því alfarið að aka bifreið. Þetta á aðeins við um fólksbifreiðar. Mótorhjól, sendibílar og aðrar tegundir ökutækja munu ekki falla undir þessa áætlun.

Ökumenn, sem vilja taka þátt í þessu, verða að hafa haft ökuskírteini í minnst sjö ár og ekið reglulega. Allir ökumenn, sem uppfylla skilyrðin, geta sótt um að vera með. Ökumenn, sem sjá síðar eftir að hafa tekið þátt og vilja fá ökuskírteinið aftur, verða að greiða sekt en upphæð henna hefur ekki enn verið ákveðin.

Í árslok 2025 voru rúmlega 445.000 skráð ökutæki í landinu, þar af voru fólksbílar 313.000 eða rúmlega 70% af heildarfjölda ökutækja. Fólksbílum fjölgaði um 20% frá 2014 til 2025.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Átta ára drengur myrtur og brenndur – Stjúpmóðirin ákærð

Átta ára drengur myrtur og brenndur – Stjúpmóðirin ákærð
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Hefur þú tekið eftir svörtu blettunum á framrúðunni? – Þeir gegna mikilvægu hlutverki

Hefur þú tekið eftir svörtu blettunum á framrúðunni? – Þeir gegna mikilvægu hlutverki
Pressan
Í gær

Kom dómsalnum í opna skjöldu þegar hún játaði hvað hún gerði foreldrum sínum fyrir 15 árum

Kom dómsalnum í opna skjöldu þegar hún játaði hvað hún gerði foreldrum sínum fyrir 15 árum
Pressan
Í gær

Dularfull veðmál í kringum drápið á Khameini og ránið á Maduro – Græddu þeir milljónir á innherjaupplýsingum?

Dularfull veðmál í kringum drápið á Khameini og ránið á Maduro – Græddu þeir milljónir á innherjaupplýsingum?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Kona dæmd í fangelsi fyrir að saka tíu karla ranglega um nauðgun – Misstu vinnu og umgengni við börn sín

Kona dæmd í fangelsi fyrir að saka tíu karla ranglega um nauðgun – Misstu vinnu og umgengni við börn sín
Pressan
Fyrir 3 dögum

Dyggur stuðningsmaður Pútíns snýst gegn honum í fordæmalausri yfirlýsingu

Dyggur stuðningsmaður Pútíns snýst gegn honum í fordæmalausri yfirlýsingu