fbpx
Sunnudagur 22.mars 2026
Pressan

Fall Pútíns gæti verið nær en flestir vænta

Pressan
Sunnudaginn 22. mars 2026 12:00

Vladimir Putin. Mynd: EPA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vladímír Pútín, Rússlandsforseti, hefur áratugum saman virst ósnertanlegur enda hefur hann haft öll völd í hendi sér og haldið fast um stjórnartaumana. Hann hefur þrengt að andstæðingum sínum og helstu andstæðingar hans hafa margir hverjir horfið yfir móðuna miklu, margir væntanlega með aðstoð útsendara Pútíns.

En á bak við það sem virðist traust yfirborð, leynist hugsanlega óstöðugleiki sem getur orðið Pútín dýrkeyptur.

Bandarískur sérfræðingur í málefnum Rússlands telur að þróun mála í Rússlandi geti orðið til þess að dramatísk valdaskipti verði. Dagbladet skýrir frá þessu.

Það er Alexander J. Motyl, prófessor og sagnfræðingur við Rutgers Newark háskólann í Bandaríkjunum, sem telur að staða Pútíns sé ekki eins styrk og margir telja.

Í grein í vefritinu 19fortyfive skrifar hann að Rússar ættu nú þegar að undirbúa sig undir hugsanlegt fall Pútíns. „Rússland þarf að undirbúa sig undir fall Valdímír Pútíns,“ skrifar hann.

Hann segir að mörg klassísk merki um hugsanlegt valdarán séu nú þegar til staðar í Rússlandi. Hið pólitíska vald er mjög miðlægt, almenningur tekur mjög lítinn þátt í pólitík og landið er í vaxandi mæli einangrað frá umheiminum.

Hann bendir einnig á að sagan sé Pútín ekki í hag því margir sovéskir leiðtogar hafi verið drepnir, ógnað eða hraktir frá völdum. Raunar hafi fimm af sjö sovéskum leiðtogum lent í þessu.

Hann bendir einnig á valdabaráttu í Rússlandi á síðustu árum. Til dæmis þegar Yevgegny Prigoshin, leiðtogi Wagnerhópsins, tók stefnuna til Kreml 2023 með málaliða her sinn. Uppreisnin stóð stutt yfir og skömmu síðar lést Prigoshin í flugslysi.

Motyl telur að óánægjan í Rússlandi geti vaxið í takt við afleiðingar stríðsins í Úkraínu. Stríðið hefur neikvæð áhrif á rússneskt efnahagslíf, landið er einangrað á alþjóðavettvangi og það er spenna meðal yfirmanna hersins og elítunnar.

Hann bendir á að hvorki herinn, þjóðvarðliðið eða leyniþjónusturnar hafi sýnt Prigoshin mótspyrnu í skammlífri uppreisn hans. Einnig gagnrýni þjóðernissinnaðir herbloggarar reglulega hvernig Kreml tekst á við stríðið í Úkraínu. Til langs tíma litið geti óánægjan vaxið hjá olígörkum og leyniþjónustunum.

„Öll púslin í púsluspilinu liggja á borðinu. Nú er það verkefni nokkurra hugrakkra Rússa að púsla þessu saman,“ segir hann í lok greinarinnar og bendir á að alvarlegur hernaðarlegur ósigur eða áframhaldandi efnahagserfiðleikar geti tendrað þann neista sem breytir valdajafnvæginu í Rússlandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Trump er með „dómsdagsflugvélina“ tilbúna

Trump er með „dómsdagsflugvélina“ tilbúna
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Spaugileg mistök hjá verslun einni – Settu „hurðarhandföng“ í sýningargluggann

Spaugileg mistök hjá verslun einni – Settu „hurðarhandföng“ í sýningargluggann
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ungi maðurinn sem hvarf í Barcelona fannst látinn

Ungi maðurinn sem hvarf í Barcelona fannst látinn
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ákærð fyrir morð eftir að hafa tekið lyf sem framkallaði fósturlát

Ákærð fyrir morð eftir að hafa tekið lyf sem framkallaði fósturlát
Pressan
Fyrir 2 dögum

Faðir fangelsaður eftir að áverkar fundust á þriggja mánaða syni hans

Faðir fangelsaður eftir að áverkar fundust á þriggja mánaða syni hans
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hommaklám leysti 35 ára gamalt sakamál – „Ég er virkilega ánægður að þessi saga fái nú að heyrast“

Hommaklám leysti 35 ára gamalt sakamál – „Ég er virkilega ánægður að þessi saga fái nú að heyrast“