fbpx
Fimmtudagur 19.febrúar 2026
Fréttir

Afhentu 17 nýja sjúkrabíla

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 19. febrúar 2026 19:12

Fulltrúar frá Fastus, Öskju og slökkviliði höfuðborgarsvæðinsins við afhendingu sjúkrabílanna. Sjúkrabílarnir eru allir af gerðinni Mercedes-Benz Sprinter.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fastus heilsa og bílaumboðið Askja afhentu Rauða Krossinum á dögunum 17 nýja sjúkrabíla sem er mikill ávinningur fyrir heilbrigðisþjónustu á Íslandi.  Sjúkrabílarnir eru allir af gerðinni Mercedes-Benz Sprinter. BAUS AT fyrirtæki í Póllandi sér um breytingar á bílunum. 

Á síðasta ári var opnað fyrir stærsta sjúkrabílaútboð sem haldið hefur verið  hér á landi, þar sem boðnir voru út 25 sjúkrabílar. Í útboðinu var einnig ákvæði um mögulega viðbót upp á allt að 25 bíla og því alls 50 sjúkrabíla. Nú hafa 17 verið afhentir og von er á átta bílum til viðbótar á næstunni. Fastus heilsa, heilbrigðissvið Fastus, vann útboðið í samstarfi við Öskju og BAUS AT.

,,Þetta er stór áfangi fyrir Fastus og frábær viðurkenning á faglegri þekkingu og reynslu okkar í heilbrigðisgeiranum. Við erum full tilhlökkunar að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu sjúkraflutninga á Íslandi,“ segir Róbert Lee Tómasson, vörustjóri hjá Fastus heilsu í tilkynningu.

Fastus heilsa hefur tekið þátt í sjúkrabílaútboðum síðan 2014 og hefur unnið öll útboðin hingað til. Á þessum tíma hefur Fastus afhent samtals 99 sjúkrabíla og styrkt þannig heilbrigðisþjónustu um allt land.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Forstjóri Deloitte sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot – „Þakklátur því að réttlætið náði fram að ganga“

Forstjóri Deloitte sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot – „Þakklátur því að réttlætið náði fram að ganga“
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Rekstrarstjóri Ísland Duty Free segir frétt Morgunblaðsins ósanngjarna – „Bera saman epli og appelsínur“

Rekstrarstjóri Ísland Duty Free segir frétt Morgunblaðsins ósanngjarna – „Bera saman epli og appelsínur“
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Þórður skammar stjórnarandstöðuna fyrir frekjukastið – „Þau hafa ekkert málefnalegt til málanna að leggja“

Þórður skammar stjórnarandstöðuna fyrir frekjukastið – „Þau hafa ekkert málefnalegt til málanna að leggja“
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Þorvaldur tekst á við erfitt krabbamein og spyr af hverju kerfið virki svona – „Fólk lendir í ýmsu og þetta féll mér í skaut að takast á við“

Þorvaldur tekst á við erfitt krabbamein og spyr af hverju kerfið virki svona – „Fólk lendir í ýmsu og þetta féll mér í skaut að takast á við“
Fréttir
Í gær

Skapaði líflegar umræður með færslu um launavísitölufrumvarpið – „Þetta þykja mér ótrúleg rök frá þér Egill“

Skapaði líflegar umræður með færslu um launavísitölufrumvarpið – „Þetta þykja mér ótrúleg rök frá þér Egill“
Fréttir
Í gær

Vill meiri innblöndun á Íslandi og skýtur á Miðflokkinn – „Hafa þegar tekið stefnuna upp í verki með sínu makavali“

Vill meiri innblöndun á Íslandi og skýtur á Miðflokkinn – „Hafa þegar tekið stefnuna upp í verki með sínu makavali“