fbpx
Laugardagur 28.mars 2026
433Sport

Mátaður við Liverpool eftir frammistöðu gærdagsins – Svimandi hár verðmiði

Helgi Fannar Sigurðsson
Fimmtudaginn 19. febrúar 2026 18:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Anthony Gordon stal senunni þegar Newcastle United vann stórsigur á Qarabag í fyrri leik liðanna í umspili Meistaradeildarinnar.

Gordon skoraði fjögur mörk í fyrri hálfleik, tvö úr opnum leik og tvö úr vítaspyrnum, og varð fyrsti leikmaður Newcastle til að skora fjögur mörk í Evrópuleik í sögu félagsins.

Aðeins Kylian Mbappe hefur skorað meira í Meistaradeildinni á tímabilinu en Gordon, sem er 24 ára.

Það er strax farið að ræða framtíð Gordon í erlendum miðlum í dag og hann til að mynda mátaður við Liverpool. Talið er að Newcastle myndi ekki setjast að samningaborðinu nema fyrir upphæð í kringum 90 milljónir punda.

Það yrði þungt högg fyrir stuðningsmenn Everton að sjá Gordon fara til erkifjendanna í Liverpool, en hann ólst upp hjá þeim og spilaði í bláu treyjunni áður en hann fór til Newcastle 2023. Hann spilaði þó vissulega í akademíu Liverpool til 11 ára aldurs.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Arsenal sagt skoða mjög öflugan framherja

Arsenal sagt skoða mjög öflugan framherja
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Þrjú ensk lið á eftir varnarmanni Barcelona

Þrjú ensk lið á eftir varnarmanni Barcelona
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Roy Hodgson tekur þjálfaraúlpuna af hillunni og tekur við liði á Englandi

Roy Hodgson tekur þjálfaraúlpuna af hillunni og tekur við liði á Englandi
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Var sterklega orðaður við Breiðablik en gerir langtíma samning við Þór

Var sterklega orðaður við Breiðablik en gerir langtíma samning við Þór
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Flugfélag með væna pillu á Arteta á afmælisdegi hans

Flugfélag með væna pillu á Arteta á afmælisdegi hans
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Telja að annað félag komi til leiks ef Barcelona kaupir hann ekki í sumar

Telja að annað félag komi til leiks ef Barcelona kaupir hann ekki í sumar
433Sport
Í gær

Grátlegt fyrir Heimi og félaga

Grátlegt fyrir Heimi og félaga
433Sport
Í gær

Liverpool til í að rústa félagaskiptametinu fyrir draumaarftaka Salah

Liverpool til í að rústa félagaskiptametinu fyrir draumaarftaka Salah