fbpx
Þriðjudagur 17.febrúar 2026
433Sport

Ungur HK-ingur til danska stórliðsins

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 17. febrúar 2026 17:00

Marten Leon Jóhannson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Marten Leon Jóhannson, leikmaður í 3. flokki HK, hefur skrifað undir þriggja ára samning við Bröndby.

HK greindi frá þessu í dag, en Marten Leon er afar efnilegur markvörður, fæddur 2010. Hann gengur formlega til liðs við danska stórliðið í sumar.

Tilkynning HK
Marten Leon Jóhannsson (2010) leikmaður 3.flokks karla, hefur skrifað undir þriggja ára samning við danska stórliðið Brøndby IF.

Marten er uppalinn HK-ingur og vakti snemma athygli sem efnilegur markvörður. Hann á að baki fjölmarga leiki fyrir yngri landslið Íslands og hefur verið á reynslu hjá Brøndby nokkrum sinnum undanfarið. Hann gengur formlega til liðs við Brøndby í júlí, þegar félagaskiptaglugginn opnar og nýtur HK því krafta hans örlítið lengur.

HK er afar stolt af þessum unga leikmanni og hlakkar mikið til að fylgjast með honum á næstu árum. Félagaskipti Martens er merki um það öfluga starf sem unnið er hjá HK svo ekki minnst þá miklu vinnu sem Marten hefur lagt á sig frá unga aldri.

Innilega til hamingju Marten og gangi þér sem allra best.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Óli Kristjáns: „Þurfum samt að þora að gera það“

Óli Kristjáns: „Þurfum samt að þora að gera það“
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Hinn ósátti markvörður líklega lánaður – Nokkur félög í úrvalsdeildinni áhugasöm

Hinn ósátti markvörður líklega lánaður – Nokkur félög í úrvalsdeildinni áhugasöm
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Rosaleg breyting með Messi á svæðinu – Þetta er aukningin í tekjum frá komu hans

Rosaleg breyting með Messi á svæðinu – Þetta er aukningin í tekjum frá komu hans
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Þorvaldur einn í framboði og enginn fer fram gegn núverandi stjórnarfólki

Þorvaldur einn í framboði og enginn fer fram gegn núverandi stjórnarfólki