

Kári Sigfússon hefur skrifað undir tveggja ára samning við Fylki. Kári er öflugur sóknarmaður sem hefur spilað með Keflavík undanfarin tvö tímabil.
Kári var valinn besti leikmaður Keflavíkur síðasta sumar og skoraði 9 mörk þegar Keflavík vann sér sæti í Bestu deildinni.
Kári ákvað að hætta í Keflavík eftir síðustu leiktíð og hafði æft með KR og fleiri liðum en endaði heima í Árbænum
„Kári er uppalinn Fylkismaður og afann, sem er hér með Kára á mynd, þekkja flestir Árbæingar,“ segir á vef Fylkis.