fbpx
Fimmtudagur 05.febrúar 2026
433Sport

Gerðu langtímasamning við Real Madrid

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 4. febrúar 2026 09:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

NFL-deildin tilkynnti á mánudag að hún muni halda áfram að leika deildarleiki í Madríd eftir að hafa náð samkomulagi við Real Madrid um langtímasamning vegna notkunar á Santiago Bernabeu-leikvanginum.

Lengd samningsins hefur ekki verið gefin upp né hvaða lið munu leika í borginni árið 2026. Fyrsti NFL-deildarleikurinn á Spáni fór fram á Bernabeu í nóvember síðastliðnum þegar Miami Dolphins lögðu Washington Commanders að velli fyrir framan 78.610 áhorfendur.

Leikurinn var sjöundi og síðasti leikur tímabilsins erlendis, en þeir hafa aldrei verið fleiri. NFL heldur áfram að stækka á alþjóðavísu og lék meðal annars í Dublin og Berlín í fyrsta sinn árið 2025, auk þess sem leikir fóru fram í London og Sao Paulo.

Forráðamenn NFL hafa lýst yfir að markmiðið sé að hvert lið fái að leika erlendis árlega. Roger Goodell, framkvæmdastjóri deildarinnar, hefur einnig nefnt Asíu sem framtíðarmarkað.

Miami Dolphins, Kansas City Chiefs og Chicago Bears hafa nú markaðsréttindi NFL á Spáni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Þessi er líklegastur til að taka við Andra Lucasi og félögum

Þessi er líklegastur til að taka við Andra Lucasi og félögum
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

City flaug inn í úrslitaleikinn – Tvö bestu lið Englands mætast á Wembley

City flaug inn í úrslitaleikinn – Tvö bestu lið Englands mætast á Wembley
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Keppni hjá konunum hefst á alvöru leik á morgun

Keppni hjá konunum hefst á alvöru leik á morgun
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Enn einu sinni að skipta um félag – Gæti tekið áhugavert skref

Enn einu sinni að skipta um félag – Gæti tekið áhugavert skref