fbpx
Þriðjudagur 24.febrúar 2026
433Sport

Carragher valdi HM hóp Englands – Skildi stór nöfn eftir

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 27. janúar 2026 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jamie Carragher valdi sitt enska landslið fyrir Heimsmeistaramótið á mánudagskvöldið og voru meðal annars Kobbie Mainoo og Jordan Henderson í hans hópi.

Heimsmeistaramótið hefst eftir innan við 140 daga og mun Thomas Tuchel tilkynna sinn hóp fyrir það, í mars verður síðasta tækifæri hans til að skoða leikmenn sína áður en valið er staðfest.

Ekki hefur verið ákveðið hvort hópurinn verði skipaður 23 eða 26 leikmönnum, en búist er við að talan verði áfram 26 líkt og á HM 2022 og EM 2024.

Carragher, sem er sérfræðingur hjá Sky Sports, valdi 26 leikmenn í þættinum Monday Night Football. Auk Mainoo og Henderson voru meðal annarra Jordan Pickford, Reece James, Ezri Konsa, Marc Guéhi, Declan Rice, Bukayo Saka og fyrirliðinn Harry Kane í hópnum.

Hann byrjaði á að velja tíu „örugga“ leikmenn, þar á meðal Jude Bellingham, þrátt fyrir að hann hafi verið gagnrýndur af Tuchel fyrir framkomu sína á vellinum.

Stór nöfn voru skild eftir eins og sjá má á hópnum hér að neðan.

Markverðir: Jordan Pickford, Dean Henderson, James Trafford

Varnarmenn: Reece James, Lewis Hall, Luke Shaw, Tino Livramento, Trent Alexander-Arnold, Ezri Konsa, Marc Guehi, Trevoh Chalobah, Harry Maguire

Miðjumenn: Declan Rice, Jordan Henderson, Elliot Anderson, Kobbie Mainoo, Adam Wharton

Sóknarmenn: Harry Kane, Ollie Watkins, Bukayo Saka, Cole Palmer, Marcus Rashford, Anthony Gordon, Jude Bellingham, Morgan Rogers, Phil Foden

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Tottenham setur verðmiða á ungan leikmann sinn

Tottenham setur verðmiða á ungan leikmann sinn
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Lögregla setur nokkrar rannsóknir af stað eftir að fjórir urðu fyrir barðinu á rasistum

Lögregla setur nokkrar rannsóknir af stað eftir að fjórir urðu fyrir barðinu á rasistum
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Öryggisgæsla í kringum Strákana okkar aukin

Öryggisgæsla í kringum Strákana okkar aukin
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Sterling spilaði fyrsta leik sinn í níu mánuði

Sterling spilaði fyrsta leik sinn í níu mánuði
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Því velt upp hvort forseta FIFA verði refsað fyrir athæfi sitt á fundi Trump

Því velt upp hvort forseta FIFA verði refsað fyrir athæfi sitt á fundi Trump
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Varpa sprengju úr einkalífi Wöndu Nöru – Stelur enn á ný fyrirsögnunum

Varpa sprengju úr einkalífi Wöndu Nöru – Stelur enn á ný fyrirsögnunum