fbpx
Laugardagur 28.mars 2026
433Sport

Sesko eftir sigurmarkið: „Hvort sem það eru fimm mínútur eða 90, þá skiptir það ekki máli“

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 23. febrúar 2026 22:12

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Benjamin Sesko, framherji Manchester United, var ánægður eftir sigurinn á Everton og sagði hann afar mikilvægan.

Sesko kom inn af bekknum og skoraði eina mark leiksins.

„Það var gríðarlega mikilvægt fyrir okkur að vinna þennan leik. Þetta var mjög erfitt. Við vorum að berjast og þeir líka. Þetta var algjör 50/50 barátta en við náðum að klára þetta og tryggja sigurinn,“
sagði Sesko í viðtali við Sky Sports.

Sesko hefur komið sterkur inn að undanförnu og segir sitt hlutverk skýrt. „Fyrir mig skiptir máli að reyna að hjálpa liðinu þegar ég kem inn á. Það er ástæðan fyrir því að ég er hér. Hvort sem það eru fimm mínútur eða 90, þá skiptir það ekki máli.“

Hann sagðist einnig hafa trú á eigin getu. „Ég trúi á sjálfan mig og liðsfélagarnir gera það líka. Þeir vita hvað þeir fá frá mér þegar ég kem inn. Það er svo undir mér komið að standa undir því.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Arsenal sagt skoða mjög öflugan framherja

Arsenal sagt skoða mjög öflugan framherja
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Þrjú ensk lið á eftir varnarmanni Barcelona

Þrjú ensk lið á eftir varnarmanni Barcelona
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Roy Hodgson tekur þjálfaraúlpuna af hillunni og tekur við liði á Englandi

Roy Hodgson tekur þjálfaraúlpuna af hillunni og tekur við liði á Englandi
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Var sterklega orðaður við Breiðablik en gerir langtíma samning við Þór

Var sterklega orðaður við Breiðablik en gerir langtíma samning við Þór
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Flugfélag með væna pillu á Arteta á afmælisdegi hans

Flugfélag með væna pillu á Arteta á afmælisdegi hans
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Telja að annað félag komi til leiks ef Barcelona kaupir hann ekki í sumar

Telja að annað félag komi til leiks ef Barcelona kaupir hann ekki í sumar
433Sport
Í gær

Grátlegt fyrir Heimi og félaga

Grátlegt fyrir Heimi og félaga
433Sport
Í gær

Liverpool til í að rústa félagaskiptametinu fyrir draumaarftaka Salah

Liverpool til í að rústa félagaskiptametinu fyrir draumaarftaka Salah