fbpx
Þriðjudagur 23.desember 2025
Fréttir

Færa menntunarsjóði Mæðrastyrksnefndar 2 milljónir króna

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 23. desember 2025 16:00

Guðríður Sigurðardóttir, formaður Menntunarsjóðsins, veitti styrknum viðtöku úr hendi Sigurðar Svanssonar, framkvæmdastjóra Sahara.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Auglýsingastofan Sahara hefur ákveðið að veita Menntunarsjóði Mæðrastyrksnefndar veglegan styrk að andvirði tveggja milljóna króna í peningum og í formi náms við Sahara Academy. Á undanförnum árum hefur Sahara styrkt starfsemi Mæðrastyrksnefndar á ýmsan hátt, meðal annars með framleiðslu myndbanda, ljósmynda og nú síðast gerð nýrrar vefsíðu, menntunarsjodurinn.is.

Menntunarsjóður Mæðrastyrksnefndar hefur þann tilgang að veita konum með lágar tekjur, sem oft eru einstæðar mæður, námsstyrk til að afla sér menntunar eða starfsréttinda sem geta orðið til þess að bæta líf þeirra og fjárhagslega afkomu. Það var Guðríður Sigurðardóttir, formaður Menntunarsjóðsins, sem veitti styrknum viðtöku úr hendi Sigurðar Svanssonar, framkvæmdastjóra Sahara. „Við þökkum Sahara innilega fyrir þetta höfðinglega framlag til sjóðsins sem gerir okkur kleift að veita fleiri tekjulágum mæðrum tækifæri til að sækja sér aukna menntun,“ segir Guðríður.

Sigurður segir að Sahara hafi í aðdraganda jóla ákveðið að leggja Menntunarsjóðnum lið með veglegu framlagi í stað hefðbundinna gjafa til viðskiptavina stofunnar, sem má segja að séu þátttakendur í þessu framtaki með því að gera það mögulegt. „Sahara hefur starfrækt Sahara Academy í nokkur ár og útskrifað hátt í 200 manns. Í gegnum reynslusögur og samtöl við nemendur sjáum við hvernig námið hefur opnað þeim ótrúlegan fjölda tækifæra. Mæðrastyrksnefnd er að vinna aldeilis frábært starf í þágu samfélagsins og með því að styðja við Menntunarsjóðinn færum við einhverjum tækifæri til að byggja undir starfsframa og bæta þannig lífsafkomu sína og fjölskyldunnar, sem er algerlega í anda jólanna,“ segir Sigurður.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Vilhjálmur: „Þetta er „jólagjöfin“ sem verðtryggð heimili fá þessi jólin“

Vilhjálmur: „Þetta er „jólagjöfin“ sem verðtryggð heimili fá þessi jólin“
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Helgi Hrafn segir að ógeðsleg slaufunarmenning hafi ráðið ríkjum – „Ég veit mætavel hvernig það er að lenda í svona hakkavél“

Helgi Hrafn segir að ógeðsleg slaufunarmenning hafi ráðið ríkjum – „Ég veit mætavel hvernig það er að lenda í svona hakkavél“
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Eva Björg breytti handriti sem reyndist of líkt Birnumálinu

Eva Björg breytti handriti sem reyndist of líkt Birnumálinu
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Sakar Samtök skattgreiðenda um að hagræða sannleikanum – „Það er einstaklega ógeðfelldur tónn í þessari grein“

Sakar Samtök skattgreiðenda um að hagræða sannleikanum – „Það er einstaklega ógeðfelldur tónn í þessari grein“
Fréttir
Í gær

Hafnarfjarðarmálið: Lífsýni mannsins fannst á fatnaði drengsins

Hafnarfjarðarmálið: Lífsýni mannsins fannst á fatnaði drengsins
Fréttir
Í gær

Landsréttur vísar máli Sendinefndar ESB gegn Tómasi Hilmari frá – „Þetta er gríðarlegur léttir“

Landsréttur vísar máli Sendinefndar ESB gegn Tómasi Hilmari frá – „Þetta er gríðarlegur léttir“
Fréttir
Í gær

„Ekkert er sárara í veröldinni en að missa barn og það getur enginn skilið nema að upplifa það“

„Ekkert er sárara í veröldinni en að missa barn og það getur enginn skilið nema að upplifa það“
Fréttir
Í gær

Vill að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra – „Þarna var um að ræða svívirðilega aðför“

Vill að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra – „Þarna var um að ræða svívirðilega aðför“