

Bandaríski hjartaskurðlæknirinn Dr. Jeremy London, sem hefur yfir 25 ára reynslu á sviði hjarta- og æðaskurðlækninga, hefur skapað sér gott orð á samfélagsmiðlinum TikTok. Í nýlegri færslu, sem vakið hefur athygli, svaraði hann spurningu um hvaða hluti fólk ætti að forðast eftir það er orðið fertugt.
Dr. London taldi upp fjögur atriði, sem eru listuð upp hér fyrir neðan, en hann tók einnig fram að fólk ætti að forðast öfgafullar lífsstílsbreytingar enda eru þær iðulega ekki líklegar til að endast. Litlar breytingar í daglegum venjum geta haft stór áhrif á heilsuna til lengri tíma.
1. Áfengi
Fyrsta og stærsta breytingin sem læknirinn mældi með er að draga úr eða hætta neyslu á áfengi. „Áfengi er eitrað fyrir hverja einustu frumu í líkamanum,“ sagði hann og benti á áhrif þess á langlífi og almenna heilsu. Rannsóknir sýni að ofneysla áfengis eykur líkur á hjartasjúkdómum, heilablóðfalli, lifrarsjúkdómum og ákveðnum tegundum krabbameina.
2. Reykingar og rafrettur
Annað atriðið kemur eflaust fáum á óvart en Dr. London hvatti fólk til þess að forðast reykingar, hvort sem um er að ræða hefðbundnar sígarettur eða rafrettur. Benti læknirinn á að samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni þá deyja átta milljónir manna árlega ótímabærum dauðdaga vegna tóbaks.
„Reykingar og veip auka áhættu á lungnakrabba, hjartaáfalli og heilablóðfalli,“ sagði læknirinn.
3. Settu svefninn í forgang
Þá sagði læknirinn það mikilvægt að fólk kæmi reglu á svefn sinn og honum skyldi ekki fórnað fyrir aðra hluti. Algengt væri að fólk væri að liggja í símanum upp í rúmi, til þess að slaka á og upplifa notalegan frítíma, en forðast ætti það að fresta svefni fyrir slíkar stundir. Benti Dr. London á að góður svefn væri lykillinn að andlegri og líkamlegri heilsu og það ætti að vera forgangsatriði að hafa hann í lagi. „Endurheimt er lykilatriði, sérstaklega þegar við eldumst,“ sagði læknirinn.
4. Rækta heilbrigð sambönd og forðast eitrað fólk
Fjórða atriðið kemur eflaust á óvart en Dr. London hvatti til þess að fólk sé duglegt að rækta heilbrigð sambönd við fjölskyldu og vini. Hins vegar ætti fólk að endurskoða samband við þá sem hann kallaði „eitraða einstaklinga“ og átta sig á skaðanum sem slík sambönd geta valdið.
Eitruð samskipti hafi alvarleg áhrif á geðheilsu fólks, auka kvíða og stuðla að þunglyndi og geti ennfremur valdið líkamlegum kvillum eins og svefnleysi og óreglulegu matarræði.