fbpx
Miðvikudagur 19.nóvember 2025
Fréttir

Var sakaður um ítrekaða kynferðislega áreitni í skemmtiferð embættis forseta Íslands – Vill nú bætur en vantar gögn

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 19. nóvember 2025 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Árið 2019 var starfsmaður forsetaembættisins sendur í leyfi og fékk skriflega áminningu vegna kynferðislegrar áreitni sem átti sér stað í vinnu- og námsferð starfsmanna til Parísar. Þáverandi forseti, Guðni Th. Jóhannesson, sendi frá sér yfirlýsingu vegna málsins þann 4. október það ár þar sem hann sagði viðkomandi hafa gerst sekan um „óþolandi athæfi gagnvart tveimur í ferðahópnum, kynferðislega áreitni í opnu rými og annað háttalag sem aldrei verður fallist á að afsaka megi á nokkurn hátt“.

Starfsmaður er nú hættur störfum og er að undirbúa skaðabótamál gegn ríkinu. Hann hefur vegna þess leitað til úrskurðarnefndar um upplýsingamál til að fá afhent gögn, annars vegar frá embætti forseta og hins vegar frá ríkislögmanni.

Hvað embætti forseta varðar vildi fyrrum starfsmaðurinn fá:

  1. öll gögn um innri meðferð forseta Íslands á máli hans, þar með talið athugasemdir, minnisblöð, fundargerðir og tölvupóstsamskipti
  2. erindisbréf til fyrirtækisins Auðnast og úrvinnsluskjöl eða niðurstöður.
  3. áminningarbréf og rökstuðning fyrir þeirri ákvörðun
  4. göng um boð eða nýtingu ráðgjafa og verndarráðstafana gagnvart honum sjálfum
  5. samskipti embættis forseta Íslands við ríkislögmann sem lögð voru til grundvallar svarabréfi til hans.

Embætti forseta Íslands hafnaði að veita þessar upplýsingar með vísan til þess að þær teldust ýmist ekki fyrirliggjandi eða að þær heyrðu til undantekningareglna. Hvað varðaði fjórða töluliðinn væri óljóst hvaða upplýsingum væri óskað eftir og því ómögulegt að verða við beiðninni.

Starfsmaðurinn taldi þetta svar embættisins benda til þess að skráningarskylda hafi verið vanrækt og gagnrýndi synjunina. Um væri að ræða kerfisbundna vanrækslu og brot á lögbundnum skyldum til verndar starfsmanni.

Fram kemur í málinu að starfsmaðurinn hafi lagt fram bótakröfu sem ríkislögmaður hefur þegar hafnað. Úrskurðarnefndin tók undir með embætti forseta Íslands um að ekki bæri að afhenda upplýsingarnar.

Hvað ríkislögmann varðar freistaði starfsmaðurinn að fá aðgang að gögnum, þar með talið aðgang að samskiptum embættis forseta Íslands við ríkislögmann sem lögð hefðu verið til grundvallar í svarbréfi ríkislögmanns við bótakröfu mannsins. Úrskurðarnefnd rakti að ríkislögmaður hefði afhent tiltekna tölvupósta úr málaskrá, en hér væri hann að krefjast tölvupósts sem hefði verið ritaður í tilefni af framkominni bótakröfu. Slík samskipti varði könnun á réttarstöðu embættisins og falli undir undanþáguákvæði upplýsingalaga.

Þrír þolendur í sömu ferð

Áreitni viðkomandi beindist gegn tveimur samstarfsmönnum. Annar þeirra er Friðbjörn Beck Möller sem starfaði sem umsjónarmaður fasteigna á Bessastöðum og var búsettur þar ásamt eiginkonu sinni, en hjónin urðu bæði fyrir kynferðislegri áreitni í Parísarferðinni. Gerandinn greip í klof á Friðbirni og réðst síðar á eiginkonu hans í lyftu, greip í líkama hennar, rass og læri, svo  hún hlaut mar af. Sama kvöld áreitti gerandinn samstarfskonu með því að hafa óviðeigandi orð um líkamsvöxt hennar. Bæði Friðbjörn og samstarfskonan sögðu starfi sínu lausu eftir að ljóst var að þau ættu að vinna áfram með gerandanum, en hann var aðeins tímabundið sendur í leyfi. Friðbjörn ræddi við DV árið 2021 þar sem hann gagnrýndi viðbrögð forseta við málinu, en Friðbjörn kærði áreitnina til lögreglu.

Sjá einnig: Friðbjörn sagði upp og flutti frá Bessastöðum eftir meinta kynferðislega áreitni samstarfsmanns – Ósáttur með viðbrögð forseta

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Bók lýsir illum aðbúnaði barna og starfsfólks á íslensku munaðarleysingjaheimili í Kenýa – „Hrein og klár lygi“

Bók lýsir illum aðbúnaði barna og starfsfólks á íslensku munaðarleysingjaheimili í Kenýa – „Hrein og klár lygi“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Sjö útköll hjá lögreglu í dag út af búðahnupli

Sjö útköll hjá lögreglu í dag út af búðahnupli
Fréttir
Í gær

Elín Edda ráðin fjármálastjóri Fastus

Elín Edda ráðin fjármálastjóri Fastus
Fréttir
Í gær

Anna breytti þessu eftir að hún kom að alvarlegu bílslysi – „Ég lærði af reynslunni“

Anna breytti þessu eftir að hún kom að alvarlegu bílslysi – „Ég lærði af reynslunni“
Fréttir
Í gær

Reknir úr snorklferð fyrir „ófullnægjandi sundkunnáttu“

Reknir úr snorklferð fyrir „ófullnægjandi sundkunnáttu“
Fréttir
Í gær

Er hætta á að netglæpamenn blekki þig? – Taktu netsvikaprófið

Er hætta á að netglæpamenn blekki þig? – Taktu netsvikaprófið
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kallar eftir því að einhverfur vinur hennar fái tækifæri á vinnumarkaðinum

Kallar eftir því að einhverfur vinur hennar fái tækifæri á vinnumarkaðinum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Bræður sakfelldir fyrir að þvætta tugi milljóna og annar fyrir að tilkynna ranglega um líkamsárás í sumarbústað

Bræður sakfelldir fyrir að þvætta tugi milljóna og annar fyrir að tilkynna ranglega um líkamsárás í sumarbústað