fbpx
Miðvikudagur 22.október 2025
Fréttir

Góð stjórnun lykilforsenda þess að framkvæmdir heppnist vel

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 22. október 2025 14:16

Jónas Halldórsson, framkvæmdastjóri JTV.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ráðstefna um verkefnastjórnun í framkvæmdaverkum 2025 verður haldin á Reykjavik Hilton Nordica 30. október. Tilgangurinn með ráðstefnunni er að vekja athygli á mikilvægi fagmennsku í framkvæmdastjórnun á Íslandi að sögn Jónasar Halldórssonar, framkvæmdastjóra JTV, sem heldur ráðstefnuna.

,,Eins og við vitum er grunnur að öllum byggingum góðir hönnuðir. Það er ekki hægt að treysta á tilviljanir, sama gildir um framkvæmdastjórnun. Góð stjórnun er ekki lúxus heldur nauðsyn, hún er lykilforsenda þess að framkvæmdir verði vel heppnaðar, segir Jónas.

Hann bendir á að Ísland standi frammi fyrir miklum framkvæmdum á næstu árum, allt frá innviðum í opinberum framkvæmdum til íbúðauppbyggingar og atvinnumannvirkja. 

,,Reynslan sýnir að á öllum stigum framkvæmda geta komið upp áskoranir; tafir, kostnaðarfrávik, gæðavandamál og ófyrirséðar aðstæður. Líkt og nauðsynlegt er að byggingar séu hannaðar og gerðar af fagfólki, er einnig þörf á faglegri verkefnastjórnun í framkvæmdaverkum. Með markvissri og faglegri stjórn aukum við líkurnar á að verkefni nái markmiðum sínum, minnkum hættuna á mistökum og tryggjum meiri gæði fyrir verkkaupa, iðnaðinn og samfélagið í heild, segir Jónas og bætir við að markmiðið sé að efla framkvæmdastjórnun á Íslandi og styrkja þannig gæði, skilvirkni og áreiðanleika í öllum framkvæmdum. Að hans mati er mikilvægt að auka vitundarvakningu um nauðsyn faglegrar stjórnunar.

Jónas Halldórsson, framkvæmdastjóri JTV.

Þarf að auka þekkingu stjórnenda

Jónas segir að einnig þurfi að auka þekkingu stjórnenda, hafa fleiri tæki og tól í verkfærakistunni. 

,,Oft er talað um að til að bæta gæði bygginga sé þörf á góðu eftirliti, sem er gott. En það skiptir ekki síður máli að ferlið í hönnun og framkvæmd sé gert faglega. Í raun snýst verkefnastjórnun um að skipuleggja og undirbúa, til þess höfum við ferla. En við erum aðallega að þjálfa okkur upp í að bregðast rétt við í aðstæðum sem upp koma. Og til þess þurfum við verkfærakistu og þjálfun. Svona ráðstefna er einn lítill hlekkur í þeirri viðleitni.

Ræðumenn á ráðstefnunni eru Stephen DeVito frá Procon Consulting, Ólafur Daníelsson frá ÓD ráðgjöf, Andrea S. Rutledge, Construction Management Association of America, Jón Kolbeinn, framkvæmdastjóri framkvæmda hjá Reitum, og Vala Björnsdóttir, partner og verkefnastjóri hjá JTV. Ráðstefnustjóri er Brynja Þorgeirsdóttir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Einar telur niðurrif Morgunblaðshússins til marks um sóun – „Það er verið að rífa steinsteypt hús nokkuð víða í bænum“

Einar telur niðurrif Morgunblaðshússins til marks um sóun – „Það er verið að rífa steinsteypt hús nokkuð víða í bænum“
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Syni Söru var hótað lífláti á skólalóðinni – „Aðdragandinn að þessu er langur og alvarlegur“

Syni Söru var hótað lífláti á skólalóðinni – „Aðdragandinn að þessu er langur og alvarlegur“
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Ákærður fyrir manndrápstilraun í Reykjanesbæ í sumar

Ákærður fyrir manndrápstilraun í Reykjanesbæ í sumar
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Aron ánetjaðist erlendum veðmálasíðum – „Þetta getur haft áhrif á kynlíf. Ef bettið gekk illa þá er bara getuleysi í gangi“

Aron ánetjaðist erlendum veðmálasíðum – „Þetta getur haft áhrif á kynlíf. Ef bettið gekk illa þá er bara getuleysi í gangi“
Fréttir
Í gær

Menntasjóður námsmanna glatað hátt í milljarði vegna gjaldþrota lántaka

Menntasjóður námsmanna glatað hátt í milljarði vegna gjaldþrota lántaka
Fréttir
Í gær

Kolbrún biður fólk um að vera vakandi fyrir svikum – „Helstu fórnarlömbin eru karlmenn á sextugs- og sjötugsaldri“

Kolbrún biður fólk um að vera vakandi fyrir svikum – „Helstu fórnarlömbin eru karlmenn á sextugs- og sjötugsaldri“
Fréttir
Í gær

Fasteignasali segir markaðinn búinn að vera í frosti – „Það er enginn að mæta á opin hús“

Fasteignasali segir markaðinn búinn að vera í frosti – „Það er enginn að mæta á opin hús“
Fréttir
Í gær

Anna lofar Felix og Klöru – Rifjar upp kynni við ónafngreindan tollvörð sem hún segir fyrirmynd Felix

Anna lofar Felix og Klöru – Rifjar upp kynni við ónafngreindan tollvörð sem hún segir fyrirmynd Felix