fbpx
Fimmtudagur 02.október 2025
Pressan

Örvæntingarfull leit að fjögurra ára dreng – Eina vísbendingin er eitt fótspor

Pressan
Fimmtudaginn 2. október 2025 11:30

August Lamont hefur verið saknað síðan á laugardag.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan í Suður-Ástralíu hefur síðustu daga leitað fjögurra ára drengs, August Lamont, sem hvarf á laugardag af afskekktri jörð afa sinnar og ömmu um 40 kílómetrum suður af bænum Yunta.

Þrátt fyrir að umfangsmikil leit hafi staðið yfir í bráðum sex daga, með hundruðum sjálfboðaliða, leitarhundum, drónum, fjórhjólum, köfurum og hitamyndavélum, eru einu ummerkin sem hafa fundist eitt fótspor um 500 metrum frá heimili fjölskyldunnar.

Lögreglan viðurkennir nú að líkurnar á að finna drenginn á lífi séu litlar en leit muni þó halda áfram en með breyttri áherslu.

Mark Syrus, yfirlögregluþjónn á svæðinu, segir við ástralska fjölmiðla að málið sé óvenjulegt og það hafi verið ólíkt August að fara á ókannaðar slóðir.

„Honum er lýst sem rólegum en ævintýragjörnum sveitapilti. Að hann hafi reikað svona langt í burtu er óvenjulegt, en hver veit hvað fer í gegnum huga fjögurra ára barns?“ spurði Mark að því er fram kemur í frétt Mail Online.

Þó að lögregla sé svartsýn heldur fjölskylda litla drengsins enn í vonina um að hann finnist á lífi. Hefur verið bent á að árstíminn sé heppilegur fyrir dvöl í óbyggðum þar sem hvorki er mjög heitt eða kalt úti.

Ýmsum tilgátum hefur verið varpað fram um hvarfið, eins og að hann hafi dottið ofan í yfirgefna námu á svæðinu. Nokkrar slíkar eru sagðar vera á svæðinu og það getur verið erfitt að koma auga á þær. Lögregla segist ekki telja að eitthvað saknæmt hafi átt sér stað.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Vegfarendur fundu nýfætt barn í pappakassa

Vegfarendur fundu nýfætt barn í pappakassa
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ellefu úr sömu fjölskyldunni dæmdir til dauða

Ellefu úr sömu fjölskyldunni dæmdir til dauða
Pressan
Fyrir 4 dögum

Björn í búð olli usla – Sló til níræðrar konu áður en annar viðskiptavinur lóðsaði hann út

Björn í búð olli usla – Sló til níræðrar konu áður en annar viðskiptavinur lóðsaði hann út
Pressan
Fyrir 4 dögum

Töldu að Mike hefði drukknað og að krókódílar hefðu étið hann – Sannleikurinn var verri en nokkur gat ímyndað sér

Töldu að Mike hefði drukknað og að krókódílar hefðu étið hann – Sannleikurinn var verri en nokkur gat ímyndað sér
Pressan
Fyrir 6 dögum

Leita nú meints morðingja eftir að hafa óvart sleppt honum úr haldi – þolandinn var aðeins 15 ára gömul

Leita nú meints morðingja eftir að hafa óvart sleppt honum úr haldi – þolandinn var aðeins 15 ára gömul
Pressan
Fyrir 6 dögum

Varnarmálaráðherra boðar til dularfulls fundar – „Fólk er mjög órólegt. Það hefur ekki hugmynd um hvað þetta þýðir“ 

Varnarmálaráðherra boðar til dularfulls fundar – „Fólk er mjög órólegt. Það hefur ekki hugmynd um hvað þetta þýðir“ 
Pressan
Fyrir 1 viku

Fjórtán ára stúlka lést eftir að hafa farið í brjóstastækkun – Pabbi hennar krefst rannsóknar

Fjórtán ára stúlka lést eftir að hafa farið í brjóstastækkun – Pabbi hennar krefst rannsóknar
Pressan
Fyrir 1 viku

Ofsahræðsla greip um sig eftir stórfurðulega hegðun flugfarþega

Ofsahræðsla greip um sig eftir stórfurðulega hegðun flugfarþega