fbpx
Mánudagur 15.september 2025
Fréttir

Líkt og 6,7 milljónir bíla væru teknir úr umferð í heilt ár 

Ritstjórn DV
Mánudaginn 15. september 2025 10:35

Ásdís Káradóttir, sjálfbærnistjóri Póstsins.  

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pósturinn fagnar Græna póstdeginum sem haldinn er hátíðlegur ár hvert og að þessu sinni ber hann upp á 18. september. Með honum er vakin athygli á því að póstfyrirtæki um allan heim hafi skuldbundið sig til að vinna að sjálfbærni og draga úr losun gróðurhúsalofttegunda í flutningum sínum. Saman hefur fyrirtækjunum tekist  að draga úr losun svo um munar eða sem samsvarar því sem dæmi að 6,7 milljónir bíla væru teknir úr umferð í heilt ár. 

Alþjóðasamtök póstfyrirtækja, IPC, standa að Græna póstdeginum sem nú er haldinn í sjöunda sinn. „Þennan dag fögnum við því að póstfyrirtækin geti í sameiningu náð árangri í sjálfbærni og loftslagsaðgerðum og viljum minna á mikilvægi sjálfbærrar póstþjónustu,“ segir Ásdís Káradóttir, sjálfbærnistjóri Póstsins.  

Mikilvæg orkuskipti í bílaflotanum 

„Pósturinn gerðist þátttakandi í þessu samstarfi árið 2023 og við höfum m.a. lagt okkar af mörkum með orkuskiptum bílaflotans. Sex stærstu flutningabílarnir okkar ganga nú alfarið fyrir vetnismeðhöndlaðri lífrænni olíu, VLO100, í stað hefðbundinnar dísilolíu en VLO100 er framleitt úr endurunninni jurtaolíu og lífrænum úrgangsefnum. Með því að nota VLO100 minnkar losun koltvísýrings um 90%. Losun frá bílaflota Póstsins dróst saman um 28% milli áranna 2023 og 2024 og vísbendingar eru um að losun flotans dragist enn meira saman í ár. Það er fagnaðarefni,“ segir Ásdís. 

Losun koltvísýrings dregist saman um 31 tonn frá 2008 

Að sögn Ásdísar hafa póstfyrirtækin sett sér sameiginleg markmið um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda um 50% fyrir árið 2030. Frá upphafi samstarfsins árið 2008 hafi þau saman náð að draga úr losun koltvísýrings í starfsemi sinni um rúmlega 31 tonn en það jafngildi: 

  • Orkunni sem 31 milljón sólarrafhlaða spari á ári sem nægi til að sjá fjórum milljónum evrópskra meðalheimila í Evrópu fyrir rafmagni í eitt ár 
  • Kolefnislosuninni sem 11.373 vindmyllur á landi spari á einu ári 
  • Því að um 6,7 milljónir bíla væru teknir úr umferð í heilt ár 
  • Árslosun heilla borga eins og Madrídar, Kuala Lumpur, Jóhannesarborgar eða New York 

„Margar hendur vinna létt verk“ 

Ásdís segir alþjóðlegt samstarf veita Póstinum tækifæri til að læra af öðrum póstfyrirtækjum og fá hugmyndir að nýjum verkefnum og markmiðum. „Margar hendur vinna létt verk og við erum þess fullviss að saman náum við lengra í átt að grænni framtíð fyrir komandi kynslóðir. Það hvetur okkur einnig áfram að geta borið árangur okkar saman við árangur annarra póstfyrirtækja. Auk þess getum við sett fram viðeigandi upplýsingar á agaðri máta því að aðferðafræði og gögn sem við leggjum til eru reglulega yfirfarin af löggiltum endurskoðendum.“ 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Forstjóri Play boðaði til starfsmannafundar

Forstjóri Play boðaði til starfsmannafundar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Nígeríska brúðurin greinir frá því hvers vegna hjónin völdu Ísland – „Ísland við elskum þig svo mikið“

Nígeríska brúðurin greinir frá því hvers vegna hjónin völdu Ísland – „Ísland við elskum þig svo mikið“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Snorri fær pillu frá ömmu sinni eftir færslu hans um Charlie Kirk – „Gegnsær populismi“

Snorri fær pillu frá ömmu sinni eftir færslu hans um Charlie Kirk – „Gegnsær populismi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Birta myndband af flótta hins meinta morðingja

Birta myndband af flótta hins meinta morðingja