Dylan Thomas Wakefield frá East Yorkshire vaknaði með „stöðugan stingandi verk“ í efri hluta kviðar, vinstra megin, þann 24. apríl síðastliðinn.
Hann keyrði sig sjálfur á sjúkrahús þar sem hann var fyrst greindur með magabólgu. En nokkrum klukkustundum kom í ljós að um væri að ræða bráða brisbólgu.
Einkenni bráðrar brisbólgu eru meðal annars ógleði og uppköst, hiti, hraður hjartsláttur og kviðverkur. Algeng orsök er langvarandi eða mikil neysla áfengis.
Á vef Doktor.is kemur fram að flestir einstaklingar með bráða brisbólgu ná sér að fullu eftir að þeir fá rétta meðferð. Í alvarlegri tilfellum, getur bráð brisbólga valdið blæðingum, vefjaskaða og sýkingum. Alvarleg brisbólga getur einnig haft áhrif á önnur mikilvæg líffæri eins og hjarta, lungu og nýru.
DailyMail greinir frá sögu Dylan og þó það sé ekki búið að staðfesta hvað hafi orsakað brisbólguna telur bróðir hans, Nathan Lamb, óhófa áfengisneyslu vera sökudólginn.
„Dylan fannst gott að drekka, en hann var bara 29 ára. Maður heldur að svona gerist ekki fyrr en seinna á lífsleiðinni,“ sagði hann í samtali við miðilinn.
„Hann átti allt lífið fram undan, þetta er svo ósanngjarnt.“
Dylan var lagður inn á sjúkrahús og fékk viðeigandi meðferð og virtist vera á bataleið. En þremur vikum síðar versnaði ástand hans og lést hann þann 28. maí.
„Þetta var mikið áfall. Við bjuggumst ekki við að hann myndi deyja úr þessu,“ sagði bróðir hans.
Eins og fyrr segir hefur málið vakið mikinn óhug, samkvæmt nýjustu tölum frá Bresku hagstofunni (ONS) eru áfengistengd dauðsföll nú í sögulegu hámarki.
„Frá aldamótum hefur orðið sjöföldun á áfengistengdum lifrarsjúkdómum á Íslandi, þar á meðal bólgum og skorpulifur,“ sagði framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ, Valgerður Rúnarsdóttir, í samtali við Mbl í nóvember í fyrra.