„Rússland rambar á barmi kreppu,“ sagði ráðherrann að sögn Dagbladet.
„Byggt á núverandi gögnum og vísbendingum frá atvinnulífinu þá erum við nú þegar, eins og ég sé það, á barmi kreppu,“ bætti ráðherrann síðan við.
Rússneski seðlabankinn lækkaði stýrivexti sína úr 21% í 20% fyrr í mánuðinum og var þetta fyrsta stýrivaxtalækkunin síðan 2022.
Rússnesk fyrirtæki hafa lengi kvartað undan þessum háu vöxtum og segja þá drepa allan vöxt og geri þeim ókleift að fjárfesta.
Refsiaðgerðir Vesturlanda koma sér illa fyrir Rússa en þær eru tilkomnar vegna innrásarinnar í Úkraínu.