Sex öryggisverðir eru grunaðir um að hafa numið á brott og myrt einstaklinga, svokallaða „sabungeros“ sem tengdust hanaati sem nýtur enn töluverðra vinsælda á Filippseyjum.
Breska ríkisútvarpið, BBC, greinir frá því að í yfirheyrslum hjá lögreglu hafi einn þeirra sagt að mennirnir, sem hurfu allir á nokkurra mánaða tímabili undir lok árs 2021 og fram í byrjun árs 2022, hafi verið myrtir og líkum þeirra fleygt í Taal-stöðuvatnið sem er skammt frá Manila.
Mun öryggisvörðurinn hafa sagt að ef gerð yrði umfangsmikil leit í vatninu myndu sennilega lík yfir hundrað einstaklinga finnast, þar á meðal glæpaforingja sem horfið hafa á síðustu árum.
Hanaat nýtur sem fyrr segir töluverðra vinsælda á Filippseyjum og er talið að hvarf mannanna tengist ásökunum um svindl þegar á heimsfaraldrinum stóð. Þá var samkomubann í gildi og voru hanaslagsmál sýnd í gegnum netið þar sem menn lögðu oft háar fjárhæðir undir.
Í frétt BBC kemur fram að yfirvöld á Filippseyjum hafi í hyggju að leita í vatninu en það er mjög djúpt á köflum, eða allt að 150 metrar. Mun leitin meðal annars krefjast sérhæfðra kafara.