fbpx
Föstudagur 20.júní 2025
Fréttir

Fyrrum forstjóri CIA segir að áætlun Trump varðandi stríðið í Úkraínu sé „barnaleg og ófullkomin“

Pressan
Föstudaginn 20. júní 2025 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Áætlun Donald Trump um hvernig á að koma á friði í Úkraínu er „barnaleg“ og „ófullkomin“ að mati John Brennan, fyrrum forstjóra bandarísku leyniþjónustunnar CIA.

Frá því að Trump tók við forsetaembættinu hefur hann þrýst á um frið í Úkraínu en hefur ekki viljað heita Úkraínu skilyrðislausum stuðningi í varnarbaráttunni gegn rússneska innrásarhernum.

Trump hafði heitið því að binda enda á stríðið á fyrsta degi sínum í Hvíta húsinu en annað hvort mælir hann daga á annan hátt en við hin eða þá að honum hefur bara algjörlega mistekist það.

Nýlega sagði hann að kannski sé best að láta Rússa og Úkraínumenn „berjast um hríð“ og þykir það til merkis um dvínandi áhuga hans á að binda enda á stríðið.

Brennan sagði í samtali við Sky News að nálgun Trump á málinu og tilraunir til að binda skjótan enda á stríðið hafi verið „barnalegar“ og „ófullkomnar“.

„Ég held að Donald Trump viti ekki hvað hann ætlar að gera,“ sagði Brennan þegar hann var spurður um næstu skref Trump til að koma á friði í Úkraínu.

Samninganefndir Rússa og Úkraínumanna hafa hist nokkrum sinnum frá upphafi stríðsins en hafa ekki náð neinum áþreifanlegum árangri öðrum en að semja um skipti á stríðsföngum og líkum fallinna hermanna.

Samband Brennan og Trump hefur ekki verið gott í gegnum tíðina. Á fyrra kjörtímabili Trump gagnrýndi Brennan Trump fyrir stefnu hans í utanríkismálum. Trump sagði Brennan þá vera „versta“ forstjóra CIA í sögu stofnunarinnar. Í janúar á þessu ári afturkallaði hann öryggisheimildir Brennan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Var Jón Þröstur myrtur af launmorðingja sem fór mannavillt?

Var Jón Þröstur myrtur af launmorðingja sem fór mannavillt?
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Harmleikurinn á Edition-hótelinu: Lögreglan hér á landi í sambandi við frönsku lögregluna

Harmleikurinn á Edition-hótelinu: Lögreglan hér á landi í sambandi við frönsku lögregluna