fbpx
Mánudagur 15.september 2025
Fréttir

Ísraelar stöðvuðu skútu Gretu Thunberg og handtóku alla um borð – Ætla að neyða áhöfnina til að horfa á upptöku af voðaverkum Hamas

Ritstjórn DV
Mánudaginn 9. júní 2025 10:07

Greta Thunberg og félagar hennar í áhöfn Madleenn. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ísraelski herinn hefur stöðvað för skútunnar Madleen, sem var á leið til Gasastrandarinnar með hjálpargögn og nauðsynjavörur, og handtekið alla tólf meðlimi áhafnarinnar, þar á meðal Gretu Thunberg. Aðgerðin átti sér um klukkan 1 í nótt en áður en hermenn voru sendir um borð í skútuna höfðu drónar og hraðbátar fylgt henni eftir um skeið. Israel Katz, varnarmálaráðherra Ísrael, hrósaði hernum í hástert og sagði aðgerðina vel heppnaða. Sagði hann enn fremur að áhöfnin Madleen yrði neydd til þess að horfa á myndband af voðaverkum Hamas þann 7. október síðastliðinn. Samkvæmt Daily Mail er um að ræða 43 mínútur af óritskoðuðu efni þar sem sjá má hroðaleg morð og limlestingar.

Verður skútunni, sem Ísraelar uppnefna sem selfie-skútuna, siglt til hafnarborgarinnar Ashod. Á myndim sem ísraelska varnarmálaráðuneytið birti mátti sjá hermenn færa áhafnarmeðlimum vatn og samlokur. Í færslunni var sagt að hjálpargögnin og nauðsynjavörurnar yrðu send til Gasa eftir „hefðbundnari mannúðarleiðum“.

„Á meðan Greta og félagar reyndu að búa til fjölmiðlafár og fanga athygli – með því sem nemur einum vörubíl af hjálpargögnum – þá hafa meira en 1.200 vörubílar flutt hjálpargögn til Gaza frá Ísrael síðastliðnar tvær vikur. Þá hefur Gaza Humanitarian Foundation útdeilt um 11 milljónum máltíða á svæðinu. Það eru leiðir til að koma hjálpargögnum til Gaza, það er ekki í gegnum Instagram-sjálfur,“ segir á vef ráðuneytisins.

 

Ein af myndunum sem Ísraelar birtu og á að sýna hermann færa Gretu samloku.

Áhöfn Madleen lagði af stað til Gasastrandarinnar frá Ítalíu þann 1. júní síðastliðinn en tilgangur ferðarinnar var að vekja athygli á matarskorti á svæðinu og mótmæla hernaði Ísraels gegn Palestínumönnum. Samtökin Freedom Flotilla Coalition standa að leiðangrinum en í kjölfar aðgerðar ísraelsher birtu samtökin myndband, sem tekið var fyrirfram, af Gretu Thunberg þar sem hún sagði að ef það væri komið í loftið þá hefði áhöfninni verið rænt af Ísraelsmönnum.

Það hefur vakið harða gagnrýni að Ísraelsmenn réðust gegn áhöfn Madleen á alþjóðlegu hafsvæði og hafa ýmsir mótmælendur krafist þess  að stjórnvöld vestrænna ríkja láti sig málið varða og sjái til þess að skútan og áhöfnin verði leyst úr haldi og fái að halda siglingu sinni áfram.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Líkt og 6,7 milljónir bíla væru teknir úr umferð í heilt ár 

Líkt og 6,7 milljónir bíla væru teknir úr umferð í heilt ár 
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Stefán undrast stríðsæsing í tali íslenskra ráðamanna – „Mér finnst tónninn í þessari skýrslu vera afskaplega furðulegur“

Stefán undrast stríðsæsing í tali íslenskra ráðamanna – „Mér finnst tónninn í þessari skýrslu vera afskaplega furðulegur“
Fréttir
Í gær

„Sársaukafull áminning um hversu hættulegir mislingar geta verið“

„Sársaukafull áminning um hversu hættulegir mislingar geta verið“
Fréttir
Í gær

Ráðgátan loksins leyst – Hvarf fyrir sex árum með leikjatölvuna í gangi og símann í hleðslu

Ráðgátan loksins leyst – Hvarf fyrir sex árum með leikjatölvuna í gangi og símann í hleðslu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Söng lag Britney af innlifun undir stýri og velti bílnum um leið

Söng lag Britney af innlifun undir stýri og velti bílnum um leið
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólína verulega ósátt við athugasemdir frá Akureyri – „Það vekur furðu að verða vitni að annarri eins þröngsýni“

Ólína verulega ósátt við athugasemdir frá Akureyri – „Það vekur furðu að verða vitni að annarri eins þröngsýni“