fbpx
Fimmtudagur 18.desember 2025
Fréttir

„Samfélagsmiðlar hafa ýtt undir sjálflægni og hafa núna gengið skrefinu lengra og valdið alvarlegri afleiðingum“

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 26. maí 2025 12:30

Myndir: Pexels.com

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Við getum stoppað og hugsað áður en við póstum á samfélagsmiðla. Við sitjum öll í sömu súpunni en við getum gert betur. Til dæmis tamið okkur gagnrýna hugsun frekar en að taka inn hvað sem okkur er fært. Það er ekki uppbyggilegt að taka þátt í leik sem er byggður á óöryggi og samkeppni. Við getum búið til samfélag á netinu sem er betra. Sem er betra fyrir geðheilsu og samfélagið okkar, og valið að vera manneskjar frekar en markaðsvörur.

Ímyndið ykkur nýja samfélagsmiðla byggða á hreinskilni og hamingju frekar en egóisma, hégóma og auð. Ímyndið ykkur hvað við getum gert saman. Ég held það yrði fallegt að komast að því. Eigum við að prófa það saman?“

segir Zoe Christi Ann Moulder sálfræðinemi í grein sinni, Eru samfélags­miðlar að gera okkur narsissísk eða bara að sýna hverja við verð­launum?

Zoe Christi Ann Moulder

Zoe segir narsissisma vinsælan og  stéttaskiptingu fela sig fyrir berum augum allra og saman eru þau að tæta samfélagið í sundur. 

„Samfélagsmiðlar hafa ýtt undir sjálflægni og hafa núna gengið skrefinu lengra og valdið alvarlegri afleiðingum. Sjálfsmat sem er háð likeum, efnahag og fegurð. Samfélagsmiðlar verðlauna narsissíska hegðun eins og sjálfdýrkun, hégóma og manipúleringu, en refsa eiginleikum eins og auðmýkt og viðkvæmni. Á sama tíma hefur veraldlegur auður orðið að einhvers konar persónuleika, og því meira sem þú sýnir hann því meira ertu verðlaunaður. Ef þú ert ekki auðugur ertu ósýnilegur.“

Zoe segir þetta hættulegt af nokkrum ástæðum: „Bæði býr það til gildislausan og falsaðan mælikvarða á velgengni og breytir fólki í markaðsvörur frekar en manneskjur. Þessi falsaði raunveruleiki ýtir líka undir neikvæð sálfræðileg áhrif eins og kvíða, öfundsýki og sundrung. Fólk er sífellt að miða sig við aðra og að sækjast eftir ímynd sem hefur ekkert innihald. Þessi umbreyting lætur manneskjum líða eins og þau séu bara mikilvæg ef þau eru sýnileg og stuðla að menningu þar sem ímynd skiptir meira máli en innihald. Forréttindi eru verðlaunuð frekar en góð gildi, og þessi menning ýtir undir ójafnrétti og sundrungu.“

Zoe segir að „í den“ eins og eldra fólkið segir, hafi karakter skipt mun meira máli en umbúðirnar. Tekur hún sem dæmi leikkonuna Audrey Hepburn sem hafi að hennar sögn ekki bara verið frábær leikkona heldur mannvinur sem vann mikilvægt starf fyrir Unicef. 

„Það er þekkt þegar hún sagði: „Fegurð konu er ekki í fötunum sem hún ber, líkamanum sem hún hefur, eða hvernig hún greiðir hárið sitt. Fegurð konu sést í augunum hennar, því að þau eru dyrnar að hjarta hennar, staðurinn þar sem ást býr.“

Ef við hugsum ekki dýpra um hver fær sviðsljósið þá erum við á leiðinni í átt samfélagi sem virðir frammistöðu á samfélagsmiðlum fram yfir fólk. Í staðinn fyrir að tala saman mun samkeppni meðal fólks aukast og samkennd mun drukkna í samfélagsmiðla-algríminu.“

Spyr hún sig hverju við getum breytt.

„Við getum ekki breytt algríminu yfir nóttu, en við getum breytt hvernig við sjálf komum klædd til dyranna. Við getum valið sannleika og innihald yfir likes. Við getum valið að fylgja fólki sem fræðir frekar en að sýna auð sinn.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Mannslát á Kársnesi: Gæsluvarðhald framlengt til 13. janúar

Mannslát á Kársnesi: Gæsluvarðhald framlengt til 13. janúar
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Björn Leví lætur gamlan kollega heyra það – „Það væri fínt að losna við hann úr þinginu”

Björn Leví lætur gamlan kollega heyra það – „Það væri fínt að losna við hann úr þinginu”
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Hjón réðust til atlögu við annan af hryðjuverkamönnum á Bondi-strönd en lifðu það ekki af – Hyllt sem hetjur

Hjón réðust til atlögu við annan af hryðjuverkamönnum á Bondi-strönd en lifðu það ekki af – Hyllt sem hetjur
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Halldór Blöndal er látinn

Halldór Blöndal er látinn
Fréttir
Í gær

Manuela Ósk svarar Helenu – „Í flestum tilfellum farið með hreinar rangfærslur“

Manuela Ósk svarar Helenu – „Í flestum tilfellum farið með hreinar rangfærslur“
Fréttir
Í gær

Hetjan í Ástralíu rýfur þögnina – Meiðslin miklu alvarlegri en talið var í fyrstu

Hetjan í Ástralíu rýfur þögnina – Meiðslin miklu alvarlegri en talið var í fyrstu
Fréttir
Í gær

Safnað fyrir Gunnar Inga sem á langt bataferli framundan – „Fyrir algjört kraftaverk var lífi hans bjargað“

Safnað fyrir Gunnar Inga sem á langt bataferli framundan – „Fyrir algjört kraftaverk var lífi hans bjargað“
Fréttir
Í gær

Verðkönnun á jólakjöti – Sjáðu hvar það er ódýrast og hvar það er dýrast

Verðkönnun á jólakjöti – Sjáðu hvar það er ódýrast og hvar það er dýrast