fbpx
Laugardagur 05.júlí 2025
433Sport

,,Hver í andskotanum gerir þetta svo stuttu eftir að hafa lofað því að eyða ævinni með einhverjum?“

Victor Pálsson
Sunnudaginn 4. maí 2025 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrum knattspyrnumaðurinn Jermain Defoe var á forsíðum götublaða Englands fyrir ekki svo löngu eftir viðtal sem birtist við konu sem kemur ekki undir nafni – the Upshot rifjar upp þeirra samband.

Konan hefur þekkt Defoe í dágóðan tíma en þau byrjuðu að spjalla reglulega í gegnum forritið WhatsApp í júlí árið 2022.

Það var aðeins mánuði eftir að Defoe kvæntist konu sinni Donna Tierney en þau gengu í það heilaga þann 4. júní það ár og kostaði brúðkaupið 200 þúsund pund.

Konan sem Defoe var að reyna við vissi ekki að hann væri giftur en komst að því að lokum og lokaði öllu sambandi þeirra á milli.

Hún áttaði sig á því að Defoe væri aðeins að leitast eftir kynlífi og komst að því of seint að hann væri frátekinn.

Defoe gerði garðinn frægan sem sóknarmaður Tottenham og er einnig fyrrum landsliðsmaður Englands.

,,Ég kynntist Jermain fyrir mörgum árum á bar en ekkert átti sér stað. Við vorum í nokkru sambandi á WhatsApp en ég hafði ekki rætt við hann í langan tíma,“ sagði konan.

,,Í júlí þá byrjaði hann að senda mér mörg skilaboð, hann var örvæntingafullur í að hitta mig og við vorum mikið í því að daðra við hvort annað.“

,,Að lokum þá var hann ekki svo heillandi, það var á hreinu að hann hugsaði um einn hlut. Ég áttaði mig svo á því að hann var giftur, ég vildi ekki taka þetta lengra.“

,,Það væri ekki sanngjarnt í garð konunnar hans. Hver í andskotanum gerir þetta svo stutt eftir að hafa lofað því að eyða ævinni með einhverjum?“

,,Ég býst við því að hann hafi talið sig vera með völd, þessi frægi og ríki fyrrum fótboltamaður. Það var enginn tilgangur í að halda þessu áfram.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Julian McMahon látinn

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Sveindís Jane: „Maður var eiginlega orðlaus yfir þessu“

Sveindís Jane: „Maður var eiginlega orðlaus yfir þessu“
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum
Kyle Walker í Burnley
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Líklegt byrjunarlið Íslands gegn Sviss þar sem allt er undir

Líklegt byrjunarlið Íslands gegn Sviss þar sem allt er undir
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Segir að United hafi gert ein stærstu mistök í sögu fótboltans í fyrra

Segir að United hafi gert ein stærstu mistök í sögu fótboltans í fyrra
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Myndband: Núverandi og fyrrverandi leikmenn Liverpool mættir til Portúgal – Jarðarförin er í dag

Myndband: Núverandi og fyrrverandi leikmenn Liverpool mættir til Portúgal – Jarðarförin er í dag
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Rodrygo fær grænt ljós frá Alonso

Rodrygo fær grænt ljós frá Alonso