fbpx
Mánudagur 11.ágúst 2025
Fókus

Afhjúpar dularfullu skilaboðin sem voru upphafið að óvæntu ástarsambandi

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Föstudaginn 25. apríl 2025 10:27

Billy Ray Cyrus og Elizabeth Hurley. Mynd/Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kántrísöngvarinn Billy Ray Cyrus afhjúpar skilaboðin sem mörkuðu upphaf ástarsambands hans og leikkonunnar Elizabeth Hurley.

Parið kom aðdáendum verulega á óvart á páskadag þegar leikkonan birti mynd af þeim saman. Fyrir það hafði fólk ekki hugmynd um að þau væru að stinga saman nefjum.

Billy Ray skildi við eiginkonu sína, áströlsku söngkonuna Firerose, síðasta sumar eftir sjö mánaða hjónaband.

Fyrst þegar greint var frá skilnaði þeirra í júní í fyrra kom fram að Cyrus væri dauðfeginn að losna við eiginkonuna sem hafi reynst úlfur í sauðargæru að hans sögn. Firerose sakaði söngvarann um andlegt og tilfinningalegt ofbeldi. Í upptöku sem var lekið af samtali Firerose og Billy Ray má heyra hann kalla hana öllum illum nöfnum, í annarri upptöku má heyra hann kalla dóttur sína, poppstjörnuna Miley Cyrus, hóru og djöful.

Firerose og Billy Ray Cyrus.

Sjá einnig: Billy Ray Cyrus rýfur þögnina eftir að upptöku af honum var lekið – Hundskammaði eiginkonuna og kallaði dótturina hóru

Í þættinum The Ty Bentli Show sagði Billy að tíminn eftir skilnaðinn hafi verið erfiður og að hann hafi fengið falleg skilaboð frá dularfullri konu.

„Hæ, ég veit að lífið er erfitt núna en ég vildi bara láta þig vita að ég er með þér í liði, þú ert með vin í þínu liði.“

Myndin sem parið birti á páskadag.

Billy Ray vissi ekki hver hafði sent honum skilaboðin og svaraði einfaldlega: „Hver er þetta?“

Þá kom í ljós að það var Elizabeth sem hafði sent honum skilaboðin. Þau þekktust fyrir. Billy Ray, 63 ára, og Elizabeth, 59 ára, léku saman í myndinni Christmas in Paradise árið 2022.

Billy Ray sagði að leikkonunni tókst alltaf að koma honum í gott skap og að þau hafi hlegið mikið saman. En síðan misstu þau samband í tvö ár, þar til Elizabeth sendi honum skilaboðin.

Heimildarmaður Page Six segir að það séu nokkrar vikur liðnar síðan samband þeirra þróaðist og ástin byrjaði að blómstra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Ofurfyrirsætan og eiginmaðurinn eru í mánaðalangri „orma- og sníkjudýrahreinsun“

Ofurfyrirsætan og eiginmaðurinn eru í mánaðalangri „orma- og sníkjudýrahreinsun“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Olga var í fjörunni á Álftanesi þegar hún fékk ónotatilfinningu – „Ég var með bíllykilinn í krepptum lófanum“

Olga var í fjörunni á Álftanesi þegar hún fékk ónotatilfinningu – „Ég var með bíllykilinn í krepptum lófanum“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Nær óþekkjanleg á gömlum myndum – Mikið breyst eftir að hún kynntist Kanye

Nær óþekkjanleg á gömlum myndum – Mikið breyst eftir að hún kynntist Kanye
Fókus
Fyrir 4 dögum

Simmi Vill segir að kona hafi eltihrellt hann í yfir þrjú ár – „Hún stóð við bílinn minn þegar ég kom út“

Simmi Vill segir að kona hafi eltihrellt hann í yfir þrjú ár – „Hún stóð við bílinn minn þegar ég kom út“