fbpx
Mánudagur 15.desember 2025
Fréttir

Lögregla varar við svikum – „Textinn er áhugaverður svo ekki sé meira sagt“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 23. apríl 2025 08:17

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan á Suðurnesjum segir að henni hafi borist ábendingar um svikapóst eða SMS sem sagður er vera frá Póstinum. „Ef rýnt er vel í skilaboðin, sem eru meðfylgjandi, má sjá að textinn er áhugaverður svo ekki sé meira sagt,” segir í tilkynningu sem lögregla birti á Facebook í morgun.

Í færslu lögreglu segir meðal annars:

„Óafhending varð“– já, það er víst ný íslensk orðmynd.

„Við óskum þér til hamingju með daginn!“ – vegna þess að þeir töpuðu pakkanum mínum?

Og auðvitað klassíkin: Smelltu á þennan grunsamlega hlekk innan 12 klst eða heimurinn hrynur!”

Í færslunni segir að í skilaboðunum séu líka þessir venjulegu hlekkir sem bera þess merki að vera frá raunverulega fyrirtækinu, en svo er hins vegar alls ekki. Biðlar lögregla til fólks að lesa með gagnrýnum augum og gæta varúðar.

„Þó svo að tungutakið sé stundum hreint út sagt skemmtilegt er ásetningurinn ekkert annað en að blekkja og svíkja. Ekki smella á hlekki, ekki svara og ekki gefa upp persónuupplýsingar til aðila sem þið þekkið ekki,“ segir lögregla sem endar færslu sína á þessum orðum:

„Svikarar eru sífellt að leita leiða til að komast yfir viðkvæmar upplýsingar – og það er mikilvægt að við séum öll vakandi.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Talað um afturför í menntamálum: „Það er eins og það megi ekki umbuna fyrir dugnað“

Talað um afturför í menntamálum: „Það er eins og það megi ekki umbuna fyrir dugnað“
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Ekkert lát á hrikalegum inflúensufaraldri – Óttast að staðan muni versna enn frekar

Ekkert lát á hrikalegum inflúensufaraldri – Óttast að staðan muni versna enn frekar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kolla hefur samúð með Þórunni: „Getur ekki verið skemmtilegt hlutskipti að vera skyldaður til að hlusta á stjórnarandstöðu landsins“

Kolla hefur samúð með Þórunni: „Getur ekki verið skemmtilegt hlutskipti að vera skyldaður til að hlusta á stjórnarandstöðu landsins“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Kaffistofan er ekki endastöð, hún getur verið upphaf að nýju lífi“

„Kaffistofan er ekki endastöð, hún getur verið upphaf að nýju lífi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

„Ég fór beyglaður út í lífið, með beyglaða sýn á lífið“

„Ég fór beyglaður út í lífið, með beyglaða sýn á lífið“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Inga hjólar í Viðskiptablaðið – „Mér leiðast svona falsfréttir og ég hvet ykkur til að vera gagnrýnin“

Inga hjólar í Viðskiptablaðið – „Mér leiðast svona falsfréttir og ég hvet ykkur til að vera gagnrýnin“