Wilfried Zaha mun ekki yfirgefa Crystal Palace í janúar, þrátt fyrir orðróma um annað. The Athletic greinir frá þessu.
Hinn þrítugi Zaha hefur lengi verið orðaður frá Palace en haldið tryggð við félagið frá því hann sneri aftur árið 2015 eftir dvöl hjá Manchester United. Zaha er uppalinn hjá Palace.
Samningur kantmannsins rennur út í sumar. Hann getur því samið við félög utan Englands núna um að ganga til liðs við þau á frjálsri sölu eftir tímabilið.
Zaha er ekki sagður vilja fara frá Palace í janúar. Hann vill klára tímabilið með liðinu og skoða svo framhaldið.
Hann hefur verið orðaður við Chelsea meðal annars.
Patrick Vieira er knattspyrnustjóri Palace. Er samband hans og Zaha sagt mjög gott og gæti það aukið líkurnar á að kappinn verði áfram á Selhurst Park.
Zaha hefur verið besti leikmaður Palace undanfarin ár