
Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, ræðir um dugnað sinn í færslu á Facebook. „Ég vinn alla daga, kvöld og helgar. Svara öllum tölvupóstum, helst sama dag og þeir berast og svara símanum hvar og hvenær sem er, á jólum og áramótum,“ skrifar Ásmundur en í færslu sinni er hann að gagnrýna Ólafíu B. Rafnsdóttur, formann VR, sem Ásmundur segir að noti öll tækifæri til að krefjast þess að laun þingmanna verði lækkuð. Sé horft á þingmannsferil Ásmundar má velta fyrir sér hvort dugnaður hans sé umtalsverður. Á síðasta þingi lagði Ásmundur fram þrjár þingsályktunartillögur, var fyrsti flutningsmaður að einu endurfluttu frumvarpi og bar upp þrjár fyrirspurnir. Ekki er sérstakur dugnaður í því. Hann tók sjötíu og sjö sinnum til máls og talaði alls í fjórar klukkustundir úr ræðustól Alþingis. Ekki er það nema í meðallagi miðað við hinn almenna þingmann og langt frá því sem mestu ræðuskörungar þingsins afreka.