

Kjaftasagan um að Jóhann Berg Guðmundsson muni ganga í raðir Breiðabliks hefur verið hávær síðustu daga þó ekkert sé komið á hreint.
Jóhann rifti samningi sínum við Al-Dhafra í Sameinuðu arabísku furstadæmunum á dögunum en hann hefur verið í atvinnumennsku í átján ár.
Jóhann fagnar 36 ára afmæli sínu síðar á þessu ári en hann hefur spilað yfir 100 landsleiki fyrir hönd Íslands.

Hann lék með Breiðablik áður en hann hélt í atvinnumennsku árið 2008 þegar hann samdi við AZ Alkmaar í Hollandi. Hann lék svo í tíu ár á Englandi, í tvö ár með Charlton og í átta ár með Burnley.
Hann hefur svo spilað í Sádí Arabíu og með Al-Dhafra síðustu tvö árin. Nú gæti svo farið að hann semji við uppeldisfélagið.
Ljóst er að það myndi vera mikill styrkur fyrir Blika að fá einn besta landsliðsmann sögunnar í sínar raðir en hvernig myndi Ólafur Ingi Skúlason stilla upp liðinu? Líklegt verður að teljast að Jóhann yrði hugsaður sem miðjumaður í liði Blika.
Besta byrjunarlið Blika?
Anton Ari Einarsson
Valgeir Valgeirsson
Viktor Örn Margeirsson
Ívar Örn Árnason
Davíð Ingvarsson
Jóhann Berg Guðmundsson
Höskuldur Gunnlaugsson
Viktor Karl Einarsson
Aron Bjarnason
Ágúst Orri Þorsteinsson
Óli Valur Ómarsson