fbpx
Miðvikudagur 18.mars 2026
433Sport

Vinicius Junior útskýrir fagn sitt í gær – Segir þetta ekki vanvirðingu

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 18. mars 2026 19:30

Vinicius Junior Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vinicius Junior segir að fagn hans gegn stuðningsmönnum Manchester City hafi verið svar við háði sem hann varð fyrir í tengslum við Gullboltann 2024.

Rodri vann verðlaunin á sínum tíma og enginn frá Real Madrid mætti á afhendinguna í París eftir að niðurstaðan lá fyrir. Í kjölfarið gerðu stuðningsmenn City grín að Vinicius og héldu uppi stórum borða þar sem Rodri kyssti bikarinn.

Í leik liðanna á dögunum svaraði Brasilíumaðurinn með því að herma eftir grátandi svipbrigðum. „Síðast þegar ég kom hingað voru þeir að gera grín að mér og segja að ég væri að gráta út af Gullboltanum,“ sagði Vinicius.

Hann lagði þó áherslu á að hann hafi ekki ætlað að sýna stuðningsmönnum óvirðingu. „Ég var ekki að vanvirða þá, þetta var bara leið til að sanna mig fyrir þeim,“ bætti hann við.

Á sama tíma var Bernardo Silva rekinn af velli fyrir hendi, sem leiddi til vítaspyrnu Vinicius sem réð úrslitum leiksins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Úrslitaleikur Þungavigtarbikarins í Garðabæ í kvöld

Úrslitaleikur Þungavigtarbikarins í Garðabæ í kvöld
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Ferli Schmeichel gæti verið lokið – Faðir hans vonar að þessu ljúki ekki svona

Ferli Schmeichel gæti verið lokið – Faðir hans vonar að þessu ljúki ekki svona
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Love Island-stjarna fullyrðir að erfitt sé að fá starf eftir þátttöku í þáttunum – Segir að þetta sé ástæðan

Love Island-stjarna fullyrðir að erfitt sé að fá starf eftir þátttöku í þáttunum – Segir að þetta sé ástæðan
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Mörgum brugðið vegna mynda af leikvanginum sem Ísland mun spila á

Mörgum brugðið vegna mynda af leikvanginum sem Ísland mun spila á