
Manchester City er búið að lána hinn unga Divine Mukasa til Leicester út leiktíðina.
Um er að ræða 18 ára gamlan miðjumann sem lék fyrsta leikinn fyrir aðallið City gegn Huddersfield í enska deildabikarnum á þessari leiktíð.
Mukasa fær nú að öllum líkindum stærra hlutverk með Leicester, sem hefur verið í nokkrum vandræðum í ensku B-deildinni á leiktíðinni. Liðið er í 16. sæti með 38 stig, 9 stigum fyrir ofan fallsvæðið og 11 stigum frá umspilssæti.
Leicester féll úr ensku úrvalsdeildinni í fyrra.
Ready to work hard 👊 pic.twitter.com/K0COprjetw
— Leicester City (@LCFC) February 3, 2026