
Marten Leon Jóhannson, leikmaður í 3. flokki HK, hefur skrifað undir þriggja ára samning við Bröndby.
HK greindi frá þessu í dag, en Marten Leon er afar efnilegur markvörður, fæddur 2010. Hann gengur formlega til liðs við danska stórliðið í sumar.
Tilkynning HK
Marten Leon Jóhannsson (2010) leikmaður 3.flokks karla, hefur skrifað undir þriggja ára samning við danska stórliðið Brøndby IF.
Marten er uppalinn HK-ingur og vakti snemma athygli sem efnilegur markvörður. Hann á að baki fjölmarga leiki fyrir yngri landslið Íslands og hefur verið á reynslu hjá Brøndby nokkrum sinnum undanfarið. Hann gengur formlega til liðs við Brøndby í júlí, þegar félagaskiptaglugginn opnar og nýtur HK því krafta hans örlítið lengur.
HK er afar stolt af þessum unga leikmanni og hlakkar mikið til að fylgjast með honum á næstu árum. Félagaskipti Martens er merki um það öfluga starf sem unnið er hjá HK svo ekki minnst þá miklu vinnu sem Marten hefur lagt á sig frá unga aldri.
Innilega til hamingju Marten og gangi þér sem allra best.