
Bukayo Saka hefur skrifað undir nýjan fimm ára samning við Arsenal sem gildir til ársins 2031, eftir því sem fram kemur í helstu miðlum.
Hann verður launahæsti leikmaður félagsins, með vikulaun upp á meira en 300 þúsund pund. Viðræður um nýjan samning hafa staðið yfir í nærri ár og ku leikmaðurinn hafa gefið munnlegt samþykki sitt í janúar.
Undanfarna mánuði hefur Arsenal lagt áherslu á að endursemja við lykilmenn, þar á meðal William Saliba og Gabriel.
Hinn 24 ára gamli Saka hefur verið einn allra besti leikmaður Arsenal undanfarin ár og þessi tíðindi því frábær fyrir félagið.
Arsenal er að eiga frábært tímabil. Liðið er með 4 stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar, komið í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar og enska bikarsins og komið í úrslitaleik deildabikarsins.