fbpx
Mánudagur 23.febrúar 2026
433Sport

Varð fyrir stunguárás á heimili sínu

Hörður Snævar Jónsson
Sunnudaginn 15. febrúar 2026 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fawaz Al-Hasawi, fyrrum eigandi Nottingham Forest, varð fyrir hnífaárás þegar hann reyndi að stöðva grímuklædda ræningja á heimili sínu í London.

Kúveitski viðskiptamaðurinn, 57 ára, slasaðist þegar menn brutust inn á heimili hans í Mayfair-hverfi í miðborg London fyrr í mánuðinum. Talið er að hann hafi verið sofandi þegar ræningjarnir ruddust inn í herbergi hans. Í átökunum hlaut hann stungusár á hendi og meiðsli á hálsi.

Árásarmennirnir flúðu vettvang og óljóst er hvort einhverju hafi verið stolið af heimilinu, sem er metið á um 10 milljónir punda. Myndir sem birst hafa á netinu sýna Al-Hasawi á sjúkrahúsrúmi, blóðugan og með umbúðir á höndum.

Lögmenn hans hafa hvatt lögreglu til að veita frekari upplýsingar um málið og segja að atvikið hafi valdið ótta meðal ferðamanna frá Persaflóaríkjum sem óttast svipuð atvik.

Al-Hasawi var eigandi Nottingham Forest á árunum 2012 til 2017. Rannsókn lögreglu á málinu stendur yfir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Tottenham setur verðmiða á ungan leikmann sinn

Tottenham setur verðmiða á ungan leikmann sinn
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Lögregla setur nokkrar rannsóknir af stað eftir að fjórir urðu fyrir barðinu á rasistum

Lögregla setur nokkrar rannsóknir af stað eftir að fjórir urðu fyrir barðinu á rasistum
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Öryggisgæsla í kringum Strákana okkar aukin

Öryggisgæsla í kringum Strákana okkar aukin
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Sterling spilaði fyrsta leik sinn í níu mánuði

Sterling spilaði fyrsta leik sinn í níu mánuði
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Því velt upp hvort forseta FIFA verði refsað fyrir athæfi sitt á fundi Trump

Því velt upp hvort forseta FIFA verði refsað fyrir athæfi sitt á fundi Trump
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Varpa sprengju úr einkalífi Wöndu Nöru – Stelur enn á ný fyrirsögnunum

Varpa sprengju úr einkalífi Wöndu Nöru – Stelur enn á ný fyrirsögnunum