fbpx
Fimmtudagur 19.febrúar 2026
433Sport

Carragher sakar stuðningsmenn Liverpool um virðingaleysi

Hörður Snævar Jónsson
Laugardaginn 24. janúar 2026 17:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jamie Carragher hefur gagnrýnt stuðningsmenn Liverpool harðlega og sakað þá um að sýna Arne Slot vanvirðingu með gagnrýni sinni á samfélagsmiðlum.

Hann segir jafnframt að nánast hvaða knattspyrnustjóri sem er myndi eiga erfitt með að ná árangri með núverandi leikmannahóp félagsins.

Slot stýrði Liverpool til sigurs í ensku úrvalsdeildinni á sínu fyrsta tímabili á Anfield, en annað tímabilið hefur reynst mun erfiðara.

Liverpool hefur þegar tapað sex deildarleikjum á tímabilinu, tveimur fleiri en á öllu síðasta tímabili, og er nú 14 stigum á eftir toppliði Arsenal.

Nýjasta vonbrigði liðsins var 1-1 jafntefli gegn fallbaráttuliði Burnley fyrir viku, þar sem Marcus Edwards jafnaði metin. Í kjölfarið beindu stuðningsmenn aftur spjótum sínum að Slot.

Carragher sagðist hissa á harðri gagnrýni á The Overlap Fan Debate á vegum Sky Bet. „Ég er farinn að verða pirraður. Ég tel að það ríki mikil vanvirðing gagnvart Slot miðað við það sem hann hefur gert fyrir félagið. Að gagnrýna hann svo harkalega aðeins sex mánuðum eftir að hann vann deildina er ósanngjarnt,“ sagði Carragher.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Vill fara til Barcelona í sumar

Vill fara til Barcelona í sumar
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Virðist vera að gefast upp hjá Chelsea eftir nokkra mánuði

Virðist vera að gefast upp hjá Chelsea eftir nokkra mánuði
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Stuðningsmenn Arsenal stressaðir – Piers Morgan telur að sagan sé að endurtaka sig

Stuðningsmenn Arsenal stressaðir – Piers Morgan telur að sagan sé að endurtaka sig
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Kallar Fabregas barn sem er fífl eftir gærkvöldið

Kallar Fabregas barn sem er fífl eftir gærkvöldið
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Eftirsjá hjá Manchester United

Eftirsjá hjá Manchester United
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Leggur fram kæru – Fjölskylda hans mátt þola líflátshótanir vegna mistaka hans

Leggur fram kæru – Fjölskylda hans mátt þola líflátshótanir vegna mistaka hans
433Sport
Í gær

Hörmuleg frammistaða Arsenal sem tapaði aftur stigum

Hörmuleg frammistaða Arsenal sem tapaði aftur stigum
433Sport
Í gær

Spyrjast fyrir um Goretzka

Spyrjast fyrir um Goretzka