fbpx
Föstudagur 06.mars 2026
433Sport

Mættur aftur í Garðabæinn – „Ég nenni ekki að hafa þetta of væmið”

Helgi Fannar Sigurðsson
Fimmtudaginn 19. febrúar 2026 16:48

Mynd: Stjarnan

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Markvörðurinn Sveinn Sigurður Jóhannesson er kominn aftur í Stjörnuna.

Sveinn, sem er 31 árs gamall, yfirgaf Stjörnuna 2018 og gekk í raðir Vals, hvar hann hefur mest megnis verið varamarkvörður.

Síðan hefur hann spilað um stutt skeið með Vestra en er mættur aftur í Garðabæinn.

Mun Sveinn koma til með að berjast við Árna Snæ Ólafsson um markvarðastöðuna hjá Stjörnunni.

Tilkynning Stjörnunnar
Við kynnum nýjasta leikmann liðsins, sem margir nú þekkja fyrir og hafa séð áður í Stjörnutreyjunni!

Sveinn Sigurður Jóhannesson snýr aftur á Samsungvöllinn eftir nokkurra ára dvöl í Val en hann fór frá Stjörnunni 2018.

„Ég nenni ekki að hafa þetta of væmið, en það er varla sá staður til sem geymir jafn margar klukkustundir eða minningar og Stjörnuvöllurinn í mínu lífi. Gott að sjá að loksins sé búið að finna réttu uppáhellinguna frá dögunum þegar Siggi Dúlla bauð upp á svarta seyðið sitt. Það eru enn menn sem neita að drekka kaffi eftir þá reynslu.

Ég mun leggja allt á borðið fyrir félagið, eins og ég hef alltaf gert. Massey Fergusoninn mun alltaf ganga, sama hvað á dynur. Það eru virkilega spennandi tímar framundan hjá Stjörnunni og ég hlakka til að mæta aftur á völlinn minn þar sem þetta allt byrjaði. Áfram Stjarnan!” segir Sveinn Sigurður um heimkomuna.

Eins og þið getið lesið þá er okkar maður vel spenntur fyrir komandi verkefni og kemur stútfullur af bæði metnaði og gleði inn í hópinn fyrir komandi tímabil.

Einnig erum við virkilega ánægð með að fá Svenna til baka og við vitum að Garðbæingar og Stjörnufólk munu taka honum fagnandi!

Velkominn aftur Svenni Siggi!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Markús Páll sagður á leið upp á Skaga

Markús Páll sagður á leið upp á Skaga
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Leikmaður Manchester City sagður bitur eftir þessi ummæli í gær – Myndband

Leikmaður Manchester City sagður bitur eftir þessi ummæli í gær – Myndband
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Látinn eftir tveggja ára baráttu við krabbamein – Varð að hætta eftir að flugeld var kastað í hann

Látinn eftir tveggja ára baráttu við krabbamein – Varð að hætta eftir að flugeld var kastað í hann
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Ekki í fyrsta sinn sem Scholes hjólar í Carrick

Ekki í fyrsta sinn sem Scholes hjólar í Carrick
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Eyðir færslum þar sem hann urðaði yfir Carrick – „Michael hefur klárlega eitthvað sérstakt við sig“

Eyðir færslum þar sem hann urðaði yfir Carrick – „Michael hefur klárlega eitthvað sérstakt við sig“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Vildi ekki fara úr húsi og grét heima hjá sér síðasta haust

Vildi ekki fara úr húsi og grét heima hjá sér síðasta haust