

Davíð Þór Viðarsson yfirmaður knattspyrnumála hjá FH er komin inn í stjórn ÍTF en þetta kemur fram í fundargerð frá stjórn KSÍ þar sem ÍTF er með fulltrúa.
Íslenskur Toppfótbolti eru hagsmunasamtök liða í efstu tveimur deildum karla og kvenna.
Þar segir að reksturinn gangi vel og stefni í arðgreiðslur til félaga í lok árs vegna góðrar stöðu. Þá segir að stærsta verkefni ársins sé að semja um sjónvarpsrétt á Bestu deildum karla og kvenna.
Úr fundargerð KSÍ:
Aðalfundur ÍTF var á dögunum og varð ein breyting á stjórn. Davíð Þór Viðarsson úr FH kemur inn í stjórn fyrir Styrmi Bragason úr Val.
Rekstur ÍTF er traustur og er stefnt að arðgreiðslu í lok árs vegna uppgjörs á Bestu deild 2022-2026.
Stærsta verkefni ársins er að semja um sjónvarpsrétt að Bestu deildunum.