

Arsenal þarf að hafa varann á í baráttunni um þýska landsliðsmanninn Leon Goretzka, en Juventus hefur einnig áhuga á miðjumanninum.
Goretzka, sem er 31 árs gamall, er sagður á förum frá Bayern München þegar samningur hans rennur út í sumar. Því gæti hann verið fáanlegur án félagskiptagjalds, sem gerir hann að mjög spennandi kost fyrir mörg félög.
Samkvæmt ítölskum miðlum fylgjast bæði Arsenal og Juventus grannt með stöðu mála og gætu farið í baráttuna um undirskrift hans á næstu mánuðum. Goretzka hefur verið lykilmaður hjá Bayern undanfarin ár, en framtíð hans hjá félaginu virðist óviss.
Arsenal er að leita að styrkingu á miðsvæðinu fyrir næsta tímabil og lítur á Goretzka sem reyndan og öflugan leikmann. Juventus vill einnig bæta gæðum og reynslu í sinn hóp.
Samkeppnin um Þjóðverjann gæti því orðið hörð þegar nær dregur sumrinu.