
Igor Tudor, stjóri Tottenham, hefur trú á að hans menn geti snúið við einvíginu við Atletico Madrid í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld.
Atletico vann fyrri leikinn á Spáni 5-2 og því mikið verk að vinna fyrir Tottenham, sem jafnframt er í hörkufallbaráttu í ensku úrvalsdeildinni.
„Þetta verður erfitt en ekki ómögulegt. Við þurfum að halda okkur inni í leiknum eins lengi og hægt er,“ segir Tudor í aðdraganda leiksins.
„Við trúum að við getum gert þetta. Það er það sem skiptir mestu máli,“ segir hann enn fremur.
Tottenham gerði jafntefli við Liverpool í ensku úrvalsdeildinni um helgina og var það besta frammistaða liðsins síðan Tudor tók við.