
Albert Guðmundsson, einn allra besti leikmaður íslenska landsliðsins, verður ekki með gegn Kanada og Haítí í vináttuleikjum ytra í lok mánaðar. Hann hefur verið að glíma við smávegis meiðsli og var ákveðið að hann skyldi sitja hjá fyrir lokasprettinn í ítalska boltanum.
„Hann er ekki alveg beint meiddur. Hann spilaði mjög vel í síðasta leik, skoraði og lagði upp, en hann er búinn að vera að ströggla með ökklann. Ef ég væri að leita í skammtímaávinningin og væri sjálfselskur, hugsa um mína ferilskrá og standa mig vel á móti Kanada, þá hefði ég sagt honum að hætta þessu væli, teipa á sér ökklann og spila bara,“ sagði Arnar um málið við 433.is í dag, eftir að hann opinberaði landsliðshóp sinn.
Hann hélt svo áfram. „En þetta er aðeins stærra mál en það. Það er svo þægilegt að byrja samræðu við leikmenn með það í huga að þeir vilji æfa og spila fyrir landsliðið. Ég veit að hjartað hans er hjá landsliðinu en hann þurfti þennan tíma til að gera sig kláran fyrir lokaleikina, vera klár í júníverkefnið. Það var nóg fyrir mig að tala við hann í tvær mínútur til að taka þessa ákvörðun,“ sagði Arnar enn fremur.
Það er nóg um að vera hjá Alberti og félögum í Fiorentina á vormánuðum. Liðið er í hörkufallbaráttu í Serie A og er sömuleiðis enn með í Sambandsdeildinni, hvar það þykir eitt sigurstranglegasta liðið.
Ítarlegt viðtal við Arnar um komandi landsleiki, valið á hópnum og fleira til er í spilaranum hér ofar.