fbpx
Þriðjudagur 24.febrúar 2026
433Sport

Gomma af stórliðum á eftir ungstirni Úlfanna

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 23. febrúar 2026 15:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Matheus Mane, ungur leikmaður Wolves, er orðaður við fjölda stórliða í Evrópu þessa dagana.

Hinn 18 ára gamli Mane hefur að mörgu leyti verið ljós punktur á afar erfiðu tímabili Úlfanna, sem eru á botninum og svo gott sem fallnir úr ensku úrvalsdeildinni.

Það þykir því ljós að einhver lið muni bjóða honum þann möguleika á að vera áfram í efstu deild. Stórlið Arsenal, Chelsea, Manchester City, Manchester United, Liverpool og Tottenham eru öll sögð með hann á blaði, auk Everton.

Í Þýskalandi eru Bayern Munchen, Dortmund og RB Leipzig öll sögð áhugasöm. Það sama má segja um Evrópumeistara Paris Saint-Germain.

Mane kom inn í aðallið Wolves á þessari leiktíð og hefur hann komið að fjórum mörkum í 17 leikjum í úrvalsdeildinni til þessa.

Miðjumaðurinn er samningsbundinn Wolves til 2029 svo félagið ætti að vera í nokkuð sterkri samningsstöðu í sumar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Tottenham setur verðmiða á ungan leikmann sinn

Tottenham setur verðmiða á ungan leikmann sinn
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Lögregla setur nokkrar rannsóknir af stað eftir að fjórir urðu fyrir barðinu á rasistum

Lögregla setur nokkrar rannsóknir af stað eftir að fjórir urðu fyrir barðinu á rasistum
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Varpa sprengju úr einkalífi Wöndu Nöru – Stelur enn á ný fyrirsögnunum

Varpa sprengju úr einkalífi Wöndu Nöru – Stelur enn á ný fyrirsögnunum
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Kaupir United tvo miðjumenn á 24 milljarða?

Kaupir United tvo miðjumenn á 24 milljarða?