Nottingham Forest hefur tilkynnt leikmannahóp sinn fyrir Evrópudeild UEFA, þar vekur margt mikla athygli.
Það er furðulegt ástand í kringum félagið en þjálfari liðsins Nuno Espírito Santo hefur átt í stríði við þá sem stýra félaginu. Er talið að mikið af leikmannakaupum sumarsins hafi ekki farið í gegnum hann.
Félagið snýr aftur í Evrópukeppni í fyrsta sinn síðan tímabilið 1995/96, eftir að hafa endað í 7. sæti ensku úrvalsdeildarinnar síðasta tímabil. Þeir tryggðu sér sæti í Evrópudeildinni eftir að Crystal Palace féll niður í Sambandsdeildina.
Nuno Espírito Santo hefur nú skilað inn lokahópnum sínum fyrir riðlakeppnina og margir furða sig á hverjir komust ekki að.
Oleksandr Zinchenko, sem kom á lánssamningi frá Arsenal á lokadegi gluggans, er ekki í hópnum, þrátt fyrir mikla Evrópureynslu með bæði Manchester City og Arsenal.
Enn frekar vekur athygli að félagið hafi skilið Omari Hutchinson eftir, leikmann sem keyptur var frá Ipswich Town fyrir allt að 37,5 milljónir punda í sumar. Er hann dýrasti leikmaður í sögu félagsins.
Hutchinson, 21 árs, hefur varla komið við sögu síðan hann kom, aðeins leikið 9 mínútur í leikjum gegn Crystal Palace og West Ham.
Þetta kemur jafnvel meira á óvart þar sem Nicolás Domínguez er meiddur en kemst á listann,