Liverpool hefur staðfest sölu á markverðinum Caoimhín Kelleher til Brentford. Kaupverðið er sagt vera 18 milljónir punda.
Kelleher er frá Írlandi og er fyrsti kostur í markið hjá Heimi Hallgrímssyni.
Hann gerir fimm ára samning við Brentford en hann vildi ólmur fara og spila meira, þau tækifæri sá hann ekki koma á Anfield.
Brentford seldi fyrr í dag Mark Flekken til Bayer Leverkusen og á Kelleher að fylla hans skarð.
Hjá Brentford er einnig Hákon Rafn Valdimarsson sem þarf að reyna að koma Kelleher á bekkinn en Flekken átti stöðuna á síðustu leiktíð.