Brentford mun fara fram á 60 milljónir punda nú þegar Bryan Mbeumo hefur samþykkt tilboð frá Manchester United.
Mbeumo vill nýja áskorun á ferli sínum og hefur náð samkomulagi við United.
Samtal félagana hefur farið af stað en talað var um í fyrstu að Brentford vildi 50 milljónir punda.
Nú segja enskir miðlar að Brentford hafi hækkað verðmiða sinn og vilji að minnsta kosti 60 milljónir punda.
Mbeumo er sóknarsinnaður leikmaður frá Kamerún sem átti frábært ár á liðnu tímabili.
EXCLUSIVE: Brentford name their price for Bryan Mbeumo after Man United transfer decision | @alex_crook
https://t.co/GKKIvhGXPw— talkSPORT (@talkSPORT) June 3, 2025