Bruno Fernandes fyrirliði Manchester United ákvað í morgun að hafna Al-Hilal í Sádí Arabíu en svo gæti farið að hann fari samt frá United.
Þannig bendir Daily Mail á það að útskýringar frá Bruno og hans fólki sé að hann vilji spila á meðal þeirra bestu í Evrópu.
Bruno Fernandes mun ekki spila í Evrópu með United á næstu leiktíð eftir erfitt tímabil.
Bruno er með 280 þúsund pund á viku hjá United og var boðið að fá 700 þúsund pund á viku skattfrjálst í Sádí Arabíu.
Hann ákvað hins vegar að hafna því en ekki er útilokað að stærri lið Evrópu reyni að fá hann frá United í sumar.