Juventus ætlar sér að reyna að kaupa Antony kantmann Manchester United og samtalið er farið af stað. Fjölmiðlar á Ítalíu segja frá.
Antony er í eigu Manchester United en hann var á láni hjá Real Betis þar sem hann blómstraði.
Kantmaðurinn frá Brasilíu fann sig ekki hjá United en náði flugi á Spáni og er eftirsóttur.
Juventus ætlar sér að reyna að safna liði í sumar eftir erfitt tímabil.
Antony kostaði United tæpar 90 milljónir punda þegar hann kom frá Ajax sumarið 2022 en hann er 25 ára gamall.