Chelsea er að skoða það að kaupa Jamie Gittens kantmann Dortmund eftir að Jadon Sancho hafnaði félaginu.
Sancho var ekki til í þann launapakka sem Chelsea bauð og fer aftur til Manchester United.
Gittens er 20 ára gamall enskur kantmaður sem hefur átt góða spretti í Þýskalandi.
Gittens kostar 50 milljónir punda og hefur Chelsea áhuga á að festa kaup á honum.
Chelsea ætlar sér að styrkja liðið nokkuð mikið í sumar og er Liam Delap mættur til félagsins frá Ipswich.