Paul Pogba er búinn að skrifa undir samning við Monaco í frönsku úrvalsdeildinni.
Þetta var staðfest í dag en þessi fyrrum leikmaður Manchester United og Juventus gerir samning til 2027.
Það er langt síðan Pogba spilaði fótbolta en hann losnaði úr banni í mars eftir að hafa fallið á lyfjaprófi.
Pogba hefur verið án félags síðan í nóvember á síðasta ári en hann rifti þá samningi sínum við Juventus.
Hann var orðaður við ýmis félög í Evrópu og í Sádi Arabíu en er nú mættur í franska boltann.