Samkvæmt fréttum dagsins færist Liverpool nær því að kaupa Marc Guehi varnarmann Crystal Palace í sumar.
Guehi á ár eftir af samningi sínum við Palace og hefur ekki viljað framlengja hann.
Guehi hefur verið á óskalista bæði Tottenham og Newcastle en ekki tekist að fá sig sig lausan frá Suður-London.
Liverpool er að selja Jarell Quansah til Leverkusen á 35 milljónir punda og vilja nota þann aur til að fá Guehi.
Guehi er enskur landsliðsmaður og hefur átt góð ár hjá Palace en áður var hann í herbúðum Chelsea.